- Project Runeberg -  Eimreiðin / VII. Ár, 1901 /
81

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

G ó ð b o ð.

Æfintýr eftir Einar Hjørleifsson.

Sálin vaggaðist meðvitundarlaus á öldum ljósvakans.

Svo þurfti Drottinn á henní a5 halda og snart hana með
veld-íssprota sínum. Hún vaknaði af svefninum, er hún hafði verið í
frá eilífð, og kom fram fyrir Drottin feimin og fagnandi, eins og
unglingur, sem ort hefir fyrsta kvæðið sitt.

Og Drottinn sendi hana ofan á jarðríki. Par átti hún fyrst
að verða að ofurlitlu barni og svo sæta kjörum mannanna, unz
æfiskeiðið væri á enda runnið.

Og hún lagði á stað til mannheima, gagntekin af
eftirvænt-ingum, sæluvonum, eins og unglingur, sem leggur upp í fyrstu
langferðina, eins og yngismær, sem á að fara að giftast manninum,
er hún ann hugástum.

Eftir nokkurn tíma kom hún aftur fram fyrir Drottin, hrædd
eitis og hundelt lamb, lömuð eins og vængbrotin æbur.

»Drottinn minn góður,« sagði hún. »Þetta þori ég ekki.
Lof-aðu mér heldur að sofna aftur.«

»Hvað þorirðu ekki?« spurði Drottinn.

»Eg þori ekki að leggja út í mannlífið. ?að er eins og
bráð–ófær á. Eg veit ekki, hvert það ber mig. Mér finst, ég muni
drukna þar í örbirgð eða veikleika eöa heimsku eða vonzku.«

»Pú skalt ekki drukna,« sagöi Drottinn. »Eg gefþér einhver
af lífsins æðstu gæöum.«

»Hvað gefur þú mér?« spurði sálin.

»Eg geri þig að karlmanni og gef þér konu, sem er yndi
þitt og eftirlæti. Hvert orð af vörum hennar skal verða að
feg-urstu sönghljómum í eyrum þínum; hver hreyfing hennar skal
verða yndisleg í augum þér, eins og þegar stráin svigna og vagga
sér í morgunblænum; fákænska hennar skal verða að barnalegu,

6

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:17 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1901/0093.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free