- Project Runeberg -  Eimreiðin / VII. Ár, 1901 /
131

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

i3i

í byrjun prédikunar þessarar er stuttlega drepið á, hversu
þýðingar-mikill atburður kristnitakan hafi verið fyrir þjóð vora. f>að er sýnt
fram á, hvernig kristindómurinn þegar í stað varð andlegt súrdeig fyrir
þjóðina, sem hafði sín blessandi og helgandi áhrif í för með sér. Hin
vilta víkingslund stillist. Harðneskjan rénar. Hefndargirnin sefast.
f>ræla-haldið .’hverfur.

Jafnframt er það þó skýrt tekið fram, að hinn fyrsti kristindómur
þjóðar vorrar hafi engan veginn verið fullkominn. það sýni hvað
Ijóslegast víg Höskuldar Hvítanessgoða og Njálsbrenna, hin tvö
voða-hryðjuverk, er unnin voru á Islandi ioii. En enda þar bregði þó
fyrir birtu kristinnar trúar. f>að vitna andlátsorð Höskuldar, og
sálar-stríð Flosa, þegar Hildigunnur bróðurdóttir hans skorar á hann að
koma blóðhefndum fram á banamönnum hins látna.

í fám orðum eru því næst tekin fram höfuðatriðin í kristnissögu
þjóðarinnar. það er sýnt fram á, að á þeim tímum, sem
kristindóm-urinn hefir staðið í mestum blóma, hefir hið andlega líf þjóðarinnar
einnig blómgast bezt

En síðasti og aðalkafli þessarar prédikunar gengur tít á það, að
kristindómurinn geti orðið súrdeig fyrir hina íslenzku þjóð með
framúr-skarandi lyftingarafli. Skilyrðin séu aðeins þau, að hann sé prédikaður
rétt og hreint, og að allir þeir, sem honum veita viðtöku, sýni hin
helgandi áhrif hans í gjörvöllu lífi sínu. Á þann hátt fær
kristindóm-urinn smátt og smátt gegnumsýrt alt þjóðfélagið og unnið sigur á öllum
andstæðum öflum. En að það sé síðasta markmið hans, hljóta allir þeir
að kannast við, sem muna eftir dæmisögu frelsarans um súrdeigið.

/• P.

JÓN BJARNASON: GUÐSPJALLAMÁL. Prédikanir á
sunnu-dögum og hátíðum kirkjuársins. Rvík 1900 (Sigurður Kristjánsson).

Höfundur prédikana þessara er einn af þeim mönnum, sem á
síð-ari tímum hefir gjört mest að því, að vekja og glæða hjá þjóð sinni
áhuga á trúarlegum og kirkjulegum efnum. Frá liðnum tímum höfum
vér þess svo margan og órækan vott, en fegursti votturinn er þó óefað
»Guðspjallamál«, prédikanasafn það, scm hann nú hefir gefið íslenzku
kirkjunni á 900 ára afmæli hennar.

Vér viljum hér ekki fara út í neinn samanburð á prédikunum þessum
og öðrum eldri íslenzkum prédikunum. Vér viljum að eins stuttlega benda
á, að hverju leyti þessar prédikanir einkenna sig frá prédikunum þeim, sem
vér hingað til höfum átt að venjast. Það, sem máske sérstaklega
ein-kennir prédikanir þessar frá prédikunum þeim, sem vér hingað til
höfum þekt, er það stöðuga tillit, sem hér" er tekið til árásanna frá hálfu
vantrúarinnar. Mjög margar prédikanir í þessu prédikanasafni verða
því, að meira eða minna leyti, trúvarnarprédikanir. Þannig eru, auk
margra fleiri, allar aðventuprédikanirnar trúvarnarprédikanir, þótt það
kannske einna helzt gildi um prédikunina á annan sunnudag í aðventu,
sem og að öðru leyti er einhver fegursta prédikunin í allri bókinni.
Slíkar trúvarnarprédikanir eru nýlunda í íslenzkri prédikunarlist. En að
sú nýlunda sé þörf og enda nauðsynleg, við það munu víst allir vinir
kristindómsins kannast. Árásir vantrúarinnar, sem einnig á síðari tím-

9*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:17 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1901/0143.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free