- Project Runeberg -  Eimreiðin / VII. Ár, 1901 /
140

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

140

Að sorgir og mótlæti mannkynið bæti,
þá meining ég hreint ekki skil.
Ef velviljuð gleðin að völdunum sæti,
þá væri’ ekki harðýðgi til,

Pá væri’ engin ólund með armæðuþrasiÖ,
né öfundin vesæl og blind;
þá væri’ ekki látgæðis lámenskufasið,
hin leiðasta heimskunnar mynd.

Pví elska’ eg þig gleði, með andlitið bjarta,
þú eykur mér krafta og þor;
þinn bústað sem oftast mér hafðu í hjarta,
þú huga míns syngjandi vor.

VII. UM SKÁLD.
Meðan glóð í gígnum er,
gáski’ í blóði ungu,
munu ljóð þín leika sér
létt á þjóöar tungu.

VIII. VÍSUR.
Pá athuga fljóðin, hvað mest sé í móð,
og menn huga’ að gróbanum sínum,
en konurnar sjóða og sýsla við jdð,
ég sit hjá þeim ljóðunum mínum.

Eg gefst upp að leita’ að þér hluttekning heit,
þú hjálpræði neitar mér þínu,
og umheimi’ ei skeyti, því veröldin veit
ei vitund af heitinu mínu.

Ég girnist ei fá meira’, en auðuast mér á,
því ákveðtia má ekki bifa.
Ó, gæti hún dáið, mín þunglynda þrá,
ég þreytist að sjá hana lifa.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:17 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1901/0152.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free