- Project Runeberg -  Eimreiðin / VII. Ár, 1901 /
171

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

i7i

ara. Á ég að spyrja um verbiö ? Kannske þú viljir kaupa
lik-kistu ?«

»Eg aö kaupa likkistu! Eg held sfbur, raunar er ég ekki
mikill smiöur, en ég vona þó, að þegar Ásdís mín deyr, þá get
ég sjálfur klambrað saman líkkistu utan um hana — og annað
þarf ég ekki á líkkistu að halda.«

»Já, þér mun verða eitthvað úr því.«

»En hvaða yfirskrift er þetta?« spurði Jón og benti á letrað
spjald, sem stóð yfir dyrunum.

»Kaupmaðurinn er þar að auglýsa varning sinn.«

»Og gerir það á spjaldi. Hvað þýðir annars þessi
yfirskrift?«

Hinn þýddi yfirskriftina, sem hljóðaði þannig:

MR. A. MILLFORD, líkkistusmíður og grafari.

Lfkkistur smíðaðar eftir máli og gjört vib gamlar kistur.

Pví næst héldu þeir áfram, unz þeir komu suður á móts við
ráðhús bæjarins. Fram undan ráðhúsinu, á umgirtum grænum
grasfleti, stendur minnisvarði yfir þá hermenn, sem féllu í
upp-reisn þeirri, er Indíánar ger5u í Norðvestur-Kanada. Efst á
minti-isvarðanum stendur myndastytta af hermanni, sem styðst fram á
byssu sína.

»Hvað gerir hann þarna uppi þessi,« spurði Jón. Pað var
ekki laust vib, að honum væri farin að förlast sjón, og sá óglögt,
hvort það var maður eða stytta.

»Þetta er bæjarvaktarinn okkar,« svaraði hinn. »Efófriðber
að hendi, þá lætur hann okkur vita það með því ab hleypa úr
byssunni.«

»Öldungis rétt. Og hun flytur Iíklega spölkorn.»

»Héðan og norður i Nýja-ísland og kemur aldrei vib
jörbina.«

’Pá er hún eins og selabyssan, sem eg átti á Litlu-Strympu.
Ljómandi verkfæri hreint, enda var hún gefin afkonungi. Ég var
barnungur, þegar Danakonungur sendi nokkrar byssur í sýsluna,
sem átti að úthluta til ungra manna. Eg fékk eina og átti hana
allan minn búskap.«

I þessu gekk velbúinn maöur fram hjá þeim. Hann þekti
fylgd-armann Jóns og talaði við hann nokkur orð á ensku.

»Bíddu mín hér eitt augnablik,« sag&i hann við Jón. »Ég
kem strax aftur.«

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:05:17 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1901/0187.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free