- Project Runeberg -  Heimilisritið / 1943 /
M3:36

Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Líklega hafði Irma Rimaldi þegar
ákveðið hvað hún ætlaði að gera,
og það var ekki ósennilegt, að hún
hefði strax tekið ákvörðun um, hvað
gera skyldi, en einungis verið að
leita fyrir sér, hvar hún hefði
Jo-lette. Og nú var Jolette i þeirri
klípu sem hún ætlaði sér.

„Mér þykir þetta leiðinlegt yðar
vegna", sagði hún vingjarnlega.
„Eg hugsa að þér hafið sagt mér eins
og er, þótt ég trúi yfirleitt ekki fólki.
En þér verðið að muna það, að allt
er yður á móti."

Jolette þagði. Hún vissi að
Rim-aldi hafði öll ráð hennar í hendi
sér.

„Mig langar alls ekki til þess að
gera yður nokkurn miska," sagði
Irma. .,Eg hef enga ástæðu til þess.
En þér verðið að skilja það, að ég
verð fyrst og fremst að hugsa um
sjálfa mig."

„Já, auðvitað," sagði Jolette dauf
i dálkinn.

„Bíðið þér augnablik, á meðan ég
skrepp fram til að tala við Ito,"
sagði Irma upp úr þungum þönkum.
„Eg skal ekkert segja um þetta, ef
hann vill lofa því að segja söguna
þannig, að Oswald hafi komið
hing-að einn, og hafi fengið aðsvif og að
fallið hafi orsakað dauða hans."

„Já, en ég þori ekki að vera
héma ein á meðan þér farið frá,"
sagði Jolette náföl. „Má ég ekki fara
í annað herbergi á meðan?"

„Nei, þér verðið að vera hér,"
sagði frúin. Jolette fannst þessi kona
hafa fengið enn miskunnarlausari

36

svip en nokkurntíma áður. „Þér
verðið að vera hérna, eins og þér
skiljið, til þess að gæta liksins."

Jolette hlýddi skjálfandi. Þó
fannst henni eins að þessi fræga
skáldkona væri að kvelja hana af
ásettu ráði. Og þegar hún var
orð-in ein, fannst henni hin
óhugnan-lega starandi augu líksins stingast
eins og óafmáanlegt brennimark
innst í sál hennar.

Það leið heil eilífð, að þvi er
Jo-lette fannst, þangað til Irma kom
aftur.

„Ito ætlar að bjarga yður," sagði
hún. „Mín vegna vill hann gera allt,
sem hann getur, þó að honum komi
þetta auðvitað annars ekkert við. En
hann gerir allt fyrir mig."

Jolette fannst það dálítið
einkenni-legt, hvað japanski þjónninn hafði
mikla hylli beggja húsbændanna.

Svo hélt Irma áfram: „Við höfum
ákveðið, að ég fari í bílnum. Til
allrar hamingju fyrir yður, er ég á
alveg nýjum bíl, sem ég keyri sjálf.
Eg get farið til vinkonu minnar í
Pasadena og verið hjá henni í nótt,
Henni finnst það ekkert
einkenni-legt, af því að ég segi henni að ég
verði alveg önnum kafin næstu
mán-uði, en hafi notað tækifærið til þess
að hitta hana, áður en ég færi að
vinna. Ito hringir svo einhverntima
í nótt til læknis í Los Angeles og
fær hjá honum læknisvottorð um
eðlilegan dauðdaga. Þér farið af stað
um leið og ég er farin."

Framh. í næsta hefti.

H EIMTLISRITIÐ

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 06:24:19 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/heimilisr/1943/0038.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free