- Project Runeberg -  Heimilisritið / 1943 /
M3:39

Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Njósnaraklúbbur kvenna

JV yrAJA hringdi til min og bað mig
um að koma heim til sín.

„Við ætlum að stofna klúbb",
sagði hún.

„Ætlum við?" hrópaði ég áköf.
„Pólitízkan? Bókmenntalegan? Eða
er það danzklúbbur "

„Þú sérð það þegar þar að
kem-ur", sagði Maja. „Ætlarðu að
koma?"

Eg mætti. Klukkan átta barði ég
að dyrum hjá Maju og fékk hinar
beztu móttökur. Þar voru saman
komnar friðustu stúlkur bæjarins.

Eg þekkti þær allar............ LiUy,

Önnu, Brittu og Heddy.

Maja gaf kaffi, kökur og
sigarett-ur. Svo barði hún í borðið.

„Dömur minar", sagði hún
hátíð-lega. „Ykkur er öllum kunnugt um
það, að bær þessi er fullur af
óþol-andi karlmönnum og að það er varla
hægt að ganga tvö skref, án þess að
þeir glápi græðgislega á mann."

Heddy tók undir þessi orð og við
hlustuðum mjog áhugasamar.

„Hversvegna glápa þeir? Hvað
vilja þeir eiginlega? Eg geri það að
tillögu minni, að við rannsökum
karlmennina og stofnum klúbb i
þeim tilgangi.

„Heyr!" hrópuðum við. „En
hvern-ig?"

Maja var vandanum vaxin. Með
HEIMILISRITIÐ

aðdáanlegri mælsku útskýrði hún
tilgang og væntanlegar
starfsaðferð-ir klúbbsins. Við klöppuðum henni
lof í lófa þegar hún hafði lokið máli
sínu. Klúbburinn var stofnaður
sam-stundis og við vorum á sama máli
um það, að í stjórn skyldu vera
þrjár: formaður, ritari og gjaldkeri.

Maja var kosin formaður með
samhljóða atkvæðum, ég var kjörin
ritari og Lilly gjaldkeri. Hún gat
fengið peninga eins og sand hjá
pabba sínum.

Erfiðast var að velja nafnið á
klúbbinn. Það var stungið upp á
„Rauð hjörtu" — „Skjaldmeyjar
Amors" og einhver stakk upp á því

Þegar konan heldur sig
sterk-asta, er hún venjulega
veik-ust. Þessi litla saga sýnir það.

að hann yrði nefndur
„Suss-Suss"-klúbburinn, kannski að það hafi
ver-ið ég.

Maja vísaði þessum tillögum
011-um á bug. Hún vildi að nafnið yrði
„Njósnaraklúbbur kvenna" og að
kjörorðið yrði: „Flettum ofan af
karlmönnunum." Við samþykktum
það einróma.

Við ákváðum að meðlimum yrði

39

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 06:24:19 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/heimilisr/1943/0041.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free