- Project Runeberg -  Heimilisritið / 1943 /
M6:31

Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

HrjSt|nyn9?

Keli: Kobbi!

Kobbi: Hvað?

Keli: Það er naumast að þú
sést. Hvar eluráu eiginlega
mann-inn?

Kobbi: Allstaðar og hvergi —
aðallega heima, þegar ég er ekki
að vinna.

Keli: Þú ert orðinn eins og
flibbahnappur undir klæðaskáp.

Kobbi: Nú, hvernig?

Keli: Þögull og óframfærinn.

Kobbi: Hvaða vitleysa.

Keli: Jú, kunningi: Maður sér
þig orðið sjaldnar en gagnsæan
kjól á hjólbeinóttum kvenmanni.

Kobbi: Þú hefur ekki farið úr
bænum í þessari bliðu.

Keli: Nei, hvað sýnist þér.
Hvað er annars að sjá þig. Þú
ert grútskitugur á höndunum.
Þværðu þér ekki?

Kobbi: Er-tu vitlaus, ég þvæ
mér kvölds og morgna.

Keli: Gleymirðu þá ekki að
skipta um þvottavatn?

Kobbi: Huh. — Finnst þér ég
kannske ekki líta sæmilega út?
Nýjan sumarhatt, nýpressuðum
fötum, með nýja skó, og finnst
þér vó’xturinn ekki karlmannlegur

Keli: Það er allt i lagi. — Nei,
en þarna er Bína og Rúna.
Stelp-ur!

Kobbi: Ertu vitlaus? Þegiðu!
Ég tala ekki við hana Bínu. Hún
er komin i ástandið.

Bína: Nei, eruð þið þarna?
Gangið þið með suður i Hljóm ■
skálagarð.

Keli: Já, það er ekki svo
vit-laust. Hann Kobbi er orðinn eins
einmana og hestafiðrildi hérna á
gó’tunum. — En hvernig er það
annars Bína? Ertu á förum til
Ameriku ?

Bína: Ertu snar-
hringa-banda- brjál? Hvernig dettur
þér þetta i hug?

Keli: Það gengur um bæinn að
þú ætlir að komast i kvennabúr
hjá mormóna þarna vestra.

Bína: Æ, góði þegiðu. Annars
hugsa ég að það væri ekkert
verra heldur en að dvelja i
þess-ari kjaftaborg.

Keli: Veistu að hann Kobbi
ætlar að gerast mormóni?

Kobbi: Hvers konar lygi er
þetta ?

Keli: Heldurðu Bina mín, að
þú vildir verða konan hans nr.
13, ef hann ætti heima í
Mor-mónaríkinu ?

Bína: Ég anza þér ekki.

Keli: Ef hann ætti 20 konur
og 20 bó’rn með hverri konu. Og
ef þar af yrðu 200 strákar, sem
yrðu eins kræfir og pabbinn og
stelpurnar ættu álíka mörg börn
og mamman, þá ættuð þið
tæp-lega 85.000 barnabörn. Heldurðu
ekki að þið kæmust bæði á þing?

HEIMILISRITIÐ

31

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 06:24:19 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/heimilisr/1943/0237.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free