- Project Runeberg -  Heimilisritið / 1943 /
M7-8:56

Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

voguð hafði hann ekki búis-t við
að hún yrði. En Belden hlaut að
liafa gert hana mjög ástfangna
af sér, fyrst hún trúði honum
fyr-ir öllu.,

Henry Brown hafði enga
löng-un til þess ao mæta honum strax.
Belden myndi ef til vill leggja
hendur á hann. „En ég hef
há-tromp á hendinni ennþá", hugsaði
Brown. „Og ég skai sýna
þess-um herramanni, að ég á eftir
að vinna spilið!’.

Brown þótti súrt í brotid, að
áætlun hans hafði brugðist, því
að hann hafði gert sér góðar
vonir um að Belden yrði sér
mik-ill tekjuauki.

En hann huggaði sig við það,
að ekki myndi Jolette græða á
þessu. Og hann brost.i þegar hann
gerði sér i hugarlund, að nú sæti
Belden inni í stofu og bioi. Áður
en langt um liði myndi hann
kannske fara að útidyrunum og
hringja aftur. Þegar hann
kæm-ist að raun um að fuglinn væri
floginn, væri liann vafalaust ekki
svo klár í kollinum, að geta
í-myndað sér þá gildru, sem verið
væri að leggja fyrir hann. Brown
var að minnsta kosti sannfærður
um að liann myndi ekki gera
neinar ráðstafanir í tæka tíð.

ÞÓTT klukkan væri langt
gengin ellefu um kvöldið,
gekk Brown rakleiðis að
íbúðar-húsi því, sem Irma Rimaldi átti
i sjálfri borginni, og hringdi
dyra-bjöllunni.

Þjónn kom til dyra. Kvað hann
frú Downing að visu vera heima,
en tæki alls ekki á móti gestum.

„Þá ætla ég að fá að skrifa
Jienni skilaboð", sagði Brown.
Hann ætlaði sér að tala við Irmu,
hvað sem það kostaði. Bréfið var
svona:

„Þér þekkið ekki nafn mitt,
frú Downing, en ég vinn hjá
Per-feetion-félaginu, og er með
raunn-leg skilaboð um Sir James Beld-

en".

Hann skrifaði „um" en ekki
„frá", og vonaði að hún myndi
ekki veita því athygli eða álíta
það stilskekkju.

Og þannig reyndist það. lrmu
skildist Jim hafa sent boðbera tál
sín og skipaði þjóninum að visa
manninum inn.

Hún hafði ætlað sér ^snemma
i rúmið, því að hún hafði
höfuð-verk. Hún var ein í herberginu,
þegar Brown gekk inn.

„Hvaða skilaboð eruð þér með
frá Jim Belden?" spurði hún og
furðaði sig á þvi hvernig náunga
Belden hafði valið til þessarar
sendiferðar.

„fig er ekki hingað kominn,
frú Downing, til þess að skýra
yður frá nokkru . þvi, sem Sir
Belden óskar eftir að ég segi
yður, heldur langar mig til þess
að tala við yður um dálitið, sem
hann vill alls ekki að ég fræði
yður um", sagði Brown og reyndi
að bera sig mannalega.

„Eruð þér drukkinn ?" sagði
hún reiðilega og tortryggm. „Þér

56

HEIMILISRITI3D

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 06:24:19 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/heimilisr/1943/0330.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free