Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 23 —
hrafn af hús-mæni,
þar er gráföl ský,
golu rekin,
hefjast himni mót.
Bíddu, austankul!
Andvörp mín
máttu ei of bylgju bera
til hinnar ungu,
athvarfslausu,
sem mitt hjarta hlaut.
Hvi svo, hugarsteinn,
hulins kvíða
svella sútir þér?
Máttkan engil
sá inn mikli faðir
veikum að vörn léði.
FERÐALOK.
Ástarstjörnu
yfir Hraundranga
skýla nætur-ský;
hló hún á himni,
hryggur þráir
sveinn í djúpum dali.
Veit eg, hvar von öll
og veröld mín
glædd er guðs loga.
Hlekki brýt eg hugar
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>