- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
76

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 76 —

Bemærk en tr. cinerea i Vinterdragt; ♂ juvenis;
skudt i November paa Alptaneset.

Din

J. Hallgr.

TIL BJARNA THORARENSENS.

(Þingvelli, 13. Júlí 1841).

Nú er hér komið, og minnir }>að mig á,
amtmað-ur minn góður! að biðja yður fyrirgefningar á
bráð-lyndinu. Ekki vegna þess, að ég þykist hafa talað
annað en satt og rétt, heldur vegna hins, að það fer
ómaklega, að ég skyldi seg.ja það einmitt við yður.

Fagur þykir mér Þingvöllur, en samt sem áður
hugsa ég hér sem minnst um hann; ég er allur í
hrauninu, eins og hvalur, og horfi á Skjaldbreið
álengdar. Hún verður merkilegt eldfjall, — þegar
— eða ef — öll kurl koma til grafar.

Blaðið, sem að innaní er, megið þér ekki taka,
nema eins og svo sem ofurlitla orlofsgjöf, rétt
handa yður. Ég finn annars á mér, að ef ég mætti
vera hérna svo sem 3 eða 4 daga, gæti ég skrifað
eitthvað nógu gott, en því láni er ekki að fagna.

Með ást og virðingu

J. Hallgrímsson.

Ég hefi beðið Þorkel að umgangast við ykkur
amtmennina hina, að ef mér liggi á, geti ég náð í
peninga frá ykkur, allt að 100 dölum, svo sem láni
af konungspeningum, mót veði í hestum mínum og
farangri. Ég skrifa Rentukammerinu það jafnframt.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0084.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free