- Project Runeberg -  Á ferð og flugi : Kvæðabálkur /
44

(1900) Author: Stephan Guðmundsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (TIFF) - On this page / på denna sida - XVI. Dagdómar

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has been proofread at least once. (diff) (history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång. (skillnad) (historik)

Svo húsfreyja gestgjafans gætti þess strags,
                hve gráföl og „tekin“ hún var,
Og benti á háskann, sem hlytist af því
                ef hún ekki hvíldi sig þar.
Og presturinn, hann hafði töskunni týnt,
                í troðningnum eitthvað hún valt.
En ég — ég var þreyttur, og svo vildi’ eg sjá
                ið sorglega framhaldið alt.

Og það var um kveldið að klerkur og ég
                — er kyrð varð í gestanna sal —
Að slysinu vikum — sem altjent komst að,
                þó annað fyrst bæri í tal. —
Ég sagði’ honum, nú væru sálaðir þrír,
                sem sagt var að meiðst hefðu verst,
Og læknirinn hefði um hitt ruslið sagt,
                það hrikti’ eða dæi víst flest!
„Þeir spurt hafa’ upp sérhvern, er særðist og dó“,
                hann svaraði hógvært og spakt;
„Af likunum fundnu að eflaust eitt
                sé íslenskrar stúlku, er sagt;
Frá námabæ Golden hún nýhorfin var,
                en nafn hennar hérlenzkt þó er,
Og vin á hún engan né útfararmann;
                það á svo að grafa’ hana hér.“


<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 01:44:57 2023 (aronsson) (diff) (history) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/aferdflugi/0046.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free