- Project Runeberg -  Á ferð og flugi : Kvæðabálkur /
52

(1900) Author: Stephan Guðmundsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (TIFF) - On this page / på denna sida - XVII. Almenningsálitið

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has been proofread at least once. (diff) (history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång. (skillnad) (historik)

Í fáti, ég barnið mitt gripið ei gat,
                en grátbændi’ að ná í það þó.
Sá eini’ í þeim flýjandi hópnum var hún,
                sem heyrði’ eða skildi mig þá;
Hún leit til mín blíðlega: Bíddu mín kyr,
                ég barninu þínu skal ná.
Svo sneri’ hún við hiklaust og henti sér inn
                í háskann, sem sloppin var frá.
Hún frelsaði krakkann, en komst ekki af
                og kramin í rústunum lá.
— Nú minningin hennar það einungis er,
                sem auðsýnt fæ þakklæti mitt.
Svo útförin hennar sé heiðarleg gerð
                ég heiti á liðsinni þitt;
Og bústu við launum, ég borga þau glöð.“ —
                Slíkt breytir fljótt áliti manns,
Ef hrasaðir veslingar verða’ honum sæmd
                og viðbót í tekjurnar hans!

Og sjálfsagt fann presturinn þarna til þess —
                og því gat hann talað svo snjalt,—
Að nú var hún hetja, sem liðin þar lá,
                og líkfylgdin vissi það alt!

En „frúin in göfuga“ viðstödd ei var,
                þó væri’ henni málefnið skylt,


<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 01:44:57 2023 (aronsson) (diff) (history) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/aferdflugi/0054.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free