- Project Runeberg -  Á ferð og flugi : Kvæðabálkur /
53

(1900) Author: Stephan Guðmundsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (TIFF) - On this page / på denna sida - XVII. Almenningsálitið

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has been proofread at least once. (diff) (history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång. (skillnad) (historik)

— En „vandaða útför“ hún samt hafði sent
                í sinn stað — því henni var ilt!
En prestskonan var þar — en þögul og þur
                og þóttaleg var hún að sjá,
Og dró að sér kjólinn, svo kæmi hann ei
                við kistuna’, er gekk hún þar hjá.
— Á leiðinni heim aftur var það nú víst
                sem við urðum tvö saman ein;
Um afreksverk Ragnheiðar ækslaðist tal
                þvi út úr — hve lestin var sein!
Ég gat um, að helgaði’ oft hálfglatað líf
                ein hugrenning göfug og djörf,
Að við gætum aldrei um eðli manns dæmt,
                en að eins um játning og störf.
Að ég væri fulltrúa’, að fyndist þó loks
                í framtíðar ómælishyl
Það gull; sem að óþekt í aurunum lá
                og atvikið gróf ekki til.

Hún svaraði að eins: „Mér dylst ei, hví drýgt
                að dáð þessa Ragnheiður gat.
Í sölurnar lagði’ hún ið sárdaufa líf,
                sem sjálf hún að vettugi mat.
Við sneiðum hjá frægðinni flest, ef að hún
                er full-keypt — ég skil mína þjóð!


<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 01:44:57 2023 (aronsson) (diff) (history) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/aferdflugi/0055.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free