- Project Runeberg -  Á ferð og flugi : Kvæðabálkur /
55

(1900) Author: Stephan Guðmundsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (TIFF) - On this page / på denna sida - XVIII. „Svo fyrirdæmi ég þig e£6i heldur*

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has been proofread at least once. (diff) (history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång. (skillnad) (historik)

Mér hugkvæmdist — eflaust af óþreyju samt,
                þó að því ei stór væru brögð —
Að ganga’ út í reitinn inn rólega þann,
                þar Ragnheiður síðast var lögð.
— Til framandi landa ég bróðurhug ber,
                þar brestur á viðkvæmnin ein,
En ætjarðar-böndum mig grípur hver grund,
                sem grær kring um Íslendings bein.
Ég skil, hví vort heimaland hjartfólgnast er:
                öll höppin og ólánið það,
Sem ættkvísl þín beið, rifjar upp fyrir þér
                hver árhvammur, fjallströnd og vað;
Og það er sem holtin sjálf hleypi’ í mann þrótt,
                þar hreystiraun einhver var drýgð;
Og svo er sem mold sú sé manni þó skyld,
                sem mæðrum og feðrum er vígð!
— En legstaðinn fann ég — og varðaðan vel,
                þó var samt ei grafskriftin rétt,
Því „Sally O’Hara“ úr letri ég las
                í línu, sem efst var þar sett;
Í næstu, hvern dag það í Desember var,
                sem dó hún, og ártalið þá;
Þar neðan við: „Daisy“ — svo fólk gæti fræðst,
                hvers „forlag“ um kostnaðinn sá!



<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 01:44:57 2023 (aronsson) (diff) (history) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/aferdflugi/0057.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free