- Project Runeberg -  Á ferð og flugi : Kvæðabálkur /
62

(1900) Author: Stephan Guðmundsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (TIFF) - On this page / på denna sida - Þrjú kvæði - Kveld

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has been proofread at least once. (diff) (history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång. (skillnad) (historik)

Hún dýpkar ei, hækkar ei, lengir þó leið
Sem langdegis sólskinið jafnt.
En augnabliks-vísirinn, ævin manns stutt,
Veit ekkert um muninn þann samt.

Því jafnvel í smalanna einveru inn
Sem árgeislinn læðist hún rótt
Og bjarmar í hugum, þó beri ei á,
Því birtingin fer þar svo hljótt —
Og ég, sem get kveðið við kolsvartan heim
Slíkt kvæði um andvöku-nótt,

Og hugarrór stigið í hvíluna þá
Að hinstu, sem við ég ei skil,
Svo viss um, að heiminum varir þó enn
Hver von mín með ljós sitt og yl, —
Það lifi, sem bezt var í sálu mín sjálfs,
— Að sólskinið verður þó til.



<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 01:44:57 2023 (aronsson) (diff) (history) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/aferdflugi/0064.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free