- Project Runeberg -  Aflstödin /
2

(1907)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - AFLSTÖDIN, 7. dec. 1907 - Hvað er til foráttu fundið - Spurningar - Getuleysi Ashdowns - Volgrið í Ashdown - Við raman reip að draga

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has been proofread at least once. (diff) (history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång. (skillnad) (historik)

3/4 miljón dollara fyrir neðan það
og tilboðið samkvæmt umsögn
verkfræðingsins hið eina til greina
takandi þegar öllu væri á botninn
hvolft. Um þetta geta ekki verið
skiftar skoðanir. En hvað er þá
að? Ekki nema það lítilræði að
bærinn á alls ekki að vera fær um
að ráðast í fyrirtækið; þó
viðunanlegt boð hafi fengizt, eigi alls ekki
að vera efni á því. Það er
aðalviðbáran. Og meiri hlutinn er
sakaður um heimskn fyrir að láta
sér sjást yfir þetta smáræði og
keyra kúfinn áfram með aflstöðina
eins fyrir það, og grípa til þeirra
örþrifaráða til að koma henni upp,
að ganga að greiða verkkaupið
fyrir hana með skuldabréfum
bæjarins, sem hljóti að hafa í för með
sér lántrausts-spjöll fyrir bæinn
og verðfall á skuldabréfum hans.

*


Spurningar.



Mun nú mikið vera varið í
mótbárur þessar? Hve nær varð
bærinn ófær að reisa aflstöðina?
Engum hugkvæmdist það við
kosningarnar 1906, að hann gæti það
ekkiÞá var hann þess fær. Hefir
honum farið þetta aftur síðan
Ashdown tók við borgarstjórn? Hví
er gerður kostnaður, haldnir
verkfræðingar, leitað tilboða, ef
bærinn getur ekki komið verkinu upp?
Er bærinn á hausnum, eins og
Ashdown segir, eða er hann það
ekki, eins og meiri hluti
bæjarstjórnarinnar heldur fram? Hvorir
segja satt? Og hví grípur
bæjarstjórnin til þess úrræðis að fá
umkeypi á skuldabréfum sínum og
aflstöðvarbyggingunni? Þetta
eru spurningar, sem kjósendur
verða að átta sig vel á, svo þeir
geti neytt réttar síns með fullri
sjón á hagsmunum sínum, og til
þess að komast að réttri
niðurstöðu er ekkert vissara en líta á
verkin hvorratveggja. Þau sýna
merkin og ljúga ekki.

*


Getuleysi Ashdowns.



Eftir kosningarnar 1906, sem
skákaði tómum aflstöðu-vinum inn
í bæjarstjórnina, hefði mátt búast
við, að þar yrðí sátt og samlyndi
og aflstöðin hlaupa létt og liðugt
af stokkunum. En það er öðru
nær en sú hafi raun á orðið.
Málið gengur seint og skrykkjótt.
Aflstöðvarvinir segja til sín, þeir
sækja á að fá málinu framgengt og
reka smiðshöggið á það með því
að taka byggingartilboðinu. En
hvað gerir Ashdown fyrir málið?
Hvað hefir hann gert til að binda
enda á sín fögru kosningarheit.
Ekki grand. Ekki nokkurt hans
handarvik síðan hann komst í
borgarstjórastöðuna vottar að
honum hafi nokkru sinni verið alvara
með það mál. Honum er trúað
betur en skyldi af aflstöðu-vinum
og er þeim það vorkunn vegna
heita hans, og falin á hendur
aðal-fyrirgrelðsla málsins,
fjármálið þeir leggja alt á hans vald og
vinir hans guma af
fjármálagarpskap hans, enginn á að vera
honum jafnsnjall. En þrátt fyrir alt
og þrátt fyrir alt lánast honum
aldrei að greiða fyrir málinu. Það
er ekki þar með búið, heldur tekst
honum æfinlega sleifaralegar til
en öðrum. Hann á að vera í
útvegum um peninga til
framkvæmda verkinu, en enga getur
hann útvegað. Hann er sendur
um allar jarðir í peninga leit, en
kemur jafn nær heim. Aftur liggja
peningar lausir fyrir þeim, sem
heima sitja, jafnvel með betri
kjörum, en Ashdown hefir fyrir hitt.
Og þegar 3 miljonirnar eru
framboðnar með góðum kjörum, litlu
minna en 4% rentu, þá hikar hann
og finnur sér sitt hvað til, þangað
til að boðið er tekið aftur.

Hvað kemur til þessa
getuleysis hjá snillingnum? Er það af
heilum toga spunnið?

*


Volgrið í Ashdown.



Skamma stund hafði höfðinginn
að ríkjum setið, þá er sá
fréttaburður hófst um alla álfu, að nú
væri Winnipeg-bær á
gjaldþrotaþröm. Vestur á strönd, austur
við haf, suður í ríkjum, allstaðar
kvað við sama útburðar-vælið.
Það var jafnhliða því að bærinn
hafði skuldabréf sín á boðstólum
til að fá peninga til
aflstöðvarbyggingarinnar og má nærri geta
hvað það hefir gert þau
útgengileg! Ashdown hefir verið brigslað
um það á opinberum fundi af
forvígismanni aflstöðvarinnar, Mr.
Garson, að volgrið og
vílfréttirnar væru runnar undan tungurótum
hans. Ashdown hefir ekki synjað
fyrir volgrið, enda er það honum
ekki hægt, en hann hefir hátíðlega
fullvissað menn um að hánn hafi
ekki spilt bæjarhagnum að neinu
leyti. Vitaskuld getur hann
ekkert um það borið. Hitt er víst að
volgur er til ills eins, jafnt
bæjarfélögum sem einstökum mönnum
og það má Ashdown vita. Hví
er hann þá að volgra? Er það af
heilum toga spunnið? Er hann
ekki að nota vit sitt í annara þarfir
meir en bæjarins? Hverjum er
hagur að því að afistöðvarmálinu
sé eytt?

*


Við raman reip að draga.



Eins áreiðanlegt og það er, að
aflstöðin nýtur hylli allrar alþyðu
og á sér meðal hennar marga
formælendur og vini smáa, jafn
tvímælalaust er og hitt, að hún á
mikla og harðvítuga fjandmenn.
Þó þeir séu fáir, þá dregur um þá.
Því þeir hafa handa milli í
ríkulegum mæli afl þeirra hluta sem gera
skal. Það eru auðkýfingarnir.
Þeir leggja peninga sína í
fyrirtæki, sem horfa til
almenningsnota, og taka óbljúgar rentur af
þeim fyrir notin. Þeir selja
almenningi þörf hans, og eru
vitanlega æfinlega andhverfir að bætt
sé úr henni á annan hátt þeim
sjálfum til hnekkis. Bæjar nyt
fyrirtæki þokast smáum fetum
áfram fyrir andstæði þessara
höfðingja og mótspyrnu: Þeir láta
ekki undan, fyr en í fulla hnefana,
fyr en þrotin eru öll brögð, og
brögð þeirra eru legio. Þeir ern
opinberir fjandmenn fyrirtækjanna
eins lengi og vit er í. Þá vinna
þeir í leyni eða slást í lið með
málinu. En hve nær, sem þeir sjá
sér lag til vinna þeir málinu það
ógagn, sem þeir mega, hlaupa úr
liði, ryðla fylking þess eða skjóta
glámu á þráðinn með einhverju

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 01:48:13 2023 (aronsson) (diff) (history) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/aflstodin/0002.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free