- Project Runeberg -  Aflstödin /
5

(1907)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - AFLSTÖDIN, 7. dec. 1907 - Ávarp (Árni Eggertson) - Auglýsingar

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has been proofread at least once. (diff) (history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång. (skillnad) (historik)

bo gunarskuldbinding á 7 til 30 árum frá
því lán var tekið. Þessar
borgunarskuldbindingar eru nefnd
handhafa-skuldabréf (bonds) og bera 4 prósent árlega
vöxtu að lögum. Þegar einhverjar
umbætur eru gjörðar í bænum, eru þessar
skuldbindingar eða handhafa-skuldabréf
gefin út og seld í Lundúnum og þegar
hærri vextir eru borgaðir af peningum en
4 prósent, verður að siá af hverjum dollar
því ekki er hægt að hækka vöxtu af
skuldabréfunum sjálfum. Tilboð kom
fram síðastliðíð sumar um 94 cent fyrir
hvern dollar, sem orðið hefði 92 cent
fyrir hvern dollar að viðbættum
sölukostnaði. Þar sem nú peningar hafa síðan
stöðugt hækkað í verði, mega 92 cent
fyrir hvern dollar heita fremur ódýrir
peningar, því það jafngildir litlu minna en
41/2 prósent vöxtum ár hvert.

Þegar tilboð þetta kom fram frá
Anglo-Canadian Engineering félaginu um að
koma upp rafmagnsstöð fyrir hálfa þriðju
miljón, sáum vér fram á peningaþörf,
ekki að eins í sambandi við stöðina,
heldur einnig til afborgunar skuld vorri við
bankann. Báðum vér því félag þetta að
gjöra tilboð í skuldabréf vor. Bauðst það
þá til að kaupa skuldabréf fyrir 5 miljónir
og gefa 92 cent fyrir hvern dollar, og
myndi það nokkurn veginn samsvara 41/2
prósent vöxtum, er bærinn yrði að borga,
en aðrir bæir hér á Vesturlandi vorda ð
selja skuldabréf sín og urðu að gjalda 5
prósent vöxtu og sumir meir. Vér álitum
því tilboð þetta gott tilboð. En Ashdown
borgarstjóri skoðaði þetta í öðru ljósi og
fylgir nú þeirri stefnu, að bærinn þurfi að
minka lausar skuidlr sínar, aður hann
hleypi sér í aðrar meiri. Alt stendur nú
kyrt hér í bænum að flestu leyti, og er það
sannfæring mín, að það yrði viðskiftalífi
bæjarins til mikillar örvunar ef vinnan
við rafmagnsstöðina væri hafin. Þegar
það fyrirtæki væri fullgjört, myndi áhrifin
verða þau, að iðnaðarfélög kæmi hingað
og veitti mörgum atvinnu og hrinda
velgengni bæjarins aftur í lag. Það er því
sannfæring mín, að mjög áríðandi sé, að
því fyrirtæki verði tafarlaust haldið áfram.
Mér finst það skylda hvers borgara, að
styðja þá menn til kosninga, sem er það
alvörumál, að rafmagnsstöð bæjarin.
komist upp, hvað sem annars er. I 3Í
kjördeild er það Pulford öldurmaður og i
4. kjördeild Davidson öldurmaður og í
fimtu kjördeild Mr. McArthur og -
ráðsmannanefnd (Board of Control) bæja
arins,þeir Garson og Cockburn. Þetta
eru menn, sem láta ekki auðfélög ógnð
sér, og láta sér af alhug ant um velfer
bæjarbúa.

Öllum er kunnugt, að sporvagnafélag
bæjarins, lætur ekkert ógjört til að tefja
fyrir, að bærinn geti komið upp
fyrirhugaðri rafmagnsstöð, þar sem það á slíka
stöð sjálft. Til þess fær það hjálp
bankans, sem þeir standa í sambandi við, og
um leið er banki bæjarins.

                Virðingarfyllst,

                                Árni Eggertson.

*


A. H. PULFORD.
A. H. PULFORD.


A. T. DAVIDSON.
A. T. DAVIDSON.


ALDERMAN A. A. M<suc</suARTHUR
ALDERMAN A. A. McARTHUR

Merkið atkvæði yðar
fyrir CONTROLERS
þannig:

Baker W. J.

Burridge James

Cockburn J. W. X

Evans W. Sanford

Garson William X

Harvey J. G.

Latimer J. G.

Greiðið atkvæði með
bæjarfulltrúa

McArthur

í 5. kjördeild

Hann á heima í kjördæminu

GREIÐIÐ ATKŒDI MEÐ

A. H. Pulford

er sækir um endurktisningu sem

Bæjarfulltrúi í 3. kjördeild.

——

Sterkur meðhaldsmaður með því að bærínn eigi öll opinber
starfsfyrirtæki og að fljótt
verði komið upp rafafísstöðinní.

Greiðið atkvæði með framtakssamri stefnu í bæjarmálum svo að
næg atvinna geti orðiÖ
fyrir verkamannínn og borgin fái góðan vöxt
og viðgang. Lífsbarátta vor er: Fólkið gegn
einokuninni. Hvoru megin ert þú?

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 01:48:13 2023 (aronsson) (diff) (history) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/aflstodin/0005.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free