- Project Runeberg -  Aflstödin /
6

(1907)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - AFLSTÖDIN, 7. dec. 1907 - Islenzkir kjósendur! - Molar - Auglýsingar

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has been proofread at least once. (diff) (history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång. (skillnad) (historik)


Islenzkir
kjósendur!



Mikið er í húfi við kosningar þessar.
Aflstöðin er í voða! Það veltur á því,
hvort þér eigið að fá ljós og hita
margfalt lægra verði en nú er kostur,
verksmiðjur og atvinnu í bæinn eða ekki!
Látið ekki blekkingar auðmannanna
villa yður! Veitið þeim gróðalindum,
sem nú falla í vasa einokunarmanna
eins og McKenzie & Mann í bæjarsjóð
og þolið engan frest á því. Það getið
þér með því eina móti að fjölmenna til
kosninga og kjósa aflstöðvar-vini,
mennina, sem reynzt hafa trúir
kosningarheitunum frá 1906.

*



Molar.



*



Lög eru það í Winnipeg bæ, að
bæjarfulltrúar og embættismenn bæjarins megi
enga eign eða meðeígn eiga í samningum
við bæinn um vinnu né vöruútvegun
bænum til handa. Þó hefir Ashdown
Hardware Co. selt bænum vörur upp á
$19,000 frá 1. jan. til 1. nóv. þ. á. Hjá
hverjum haldið þið, piltar, að
eldsvoðaábyrgð bæjarins yrði holað niður, ef
Riley vátryggingarstjóri næði kosningu?

*



Sá maður sem lætur sér sæma að
seilast eptir óleyfilegum arði, sem hann
jafnvel dregur ekki, er vís til að taka dúsu
hjá Mackenzie og Mann, ef þeir vildu
stinga henni að honum — hvað heldur
þú?

Dreymdi mig það?



Dag einn béið eg ásamt fleiru fólki hjá
Unionbankanum eftir hinum hraðfara
Williamvagni. Mér varð litið á flötina
fyrir framan ráðhúsið og sá þar stóðhross
mörg samankomin.

Eg undraðist hverju þetta sætti, og
gekk því nær til að vita hvers eg mætti
verða vísari. Í því bili var
ráðhúshurðinni hrundið upp og kom þar út maður
lítill vexti, alskeggaður, dökkur á brá og
brún og allur hinn fjölkyngislegasti.
Þóttist eg þegar vita að hann mundi
valdur að hrossastóðinni. Hann hafði
svipu mikla i hendi og hvein í henni er
hann sló henni til.

Þegar hrossin sáu mann þenna,
gnegguðu þau hátt og krupu til jarðar. Eg
heyrði þá að þau kunnu mannsmál. Þau
hrópuðu í sífellu: „Ríddu oss, ríddu oss
hvert sem þú vilt.” Litli maðurinn gekk
þá að fola einum bleikum og blesóttum,
snart hann með svipunni og mælti: „Þig
tek eg fyrstan Bleikur, en láttu þig ekki
henda að prjóna eins og um daginn."
Bleikur lagðist þá niður en hrossin æptu:
„Ríddu oss, ríddu oss, hvert sem þú
vilt.”

Næst veik hinn litli maður sér að
gömlum klár, sá var eineygður. „Þú hefir
jafnan reynzt mér auðs\eipur Hari og
víst mun eg þig taka.” En Hari fé!l til
jarðar og sleikti tær dvergsins og
undraðist eg stórum auðmýkt dýrsins.

„Þarna ert þú, Silfurtoppur, og það
sögðu mér fyrri húsbændur þínir að þú
værir góður klár og gegn og mun eg þig
tilnefna.” En eg þóttist þekkja þar
uppgjafareiðskjóta þeirra Mc. & M.

Nú þótti mér maðurinn litast um
stundarkorn, en hrossin mændu á hann
tárvotum bænaraugum. Þá gekk hann
að hesti einum ljótum og sármögrum og
var hann allur skáldaður. Eg undraðist
því hann gerði slíkt er um svo marga
eldishesta var að velja. En litli
maðurinn snart hann með svipunni og mælti:
„Illt hefir þú átt á útiganginum, Latur,
og víst væri þér betra á stalli hjá mér.
Þig tek eg með mér og þá hefi eg fengið
fióra reiðskjótana.” En hrossin spentu
upp tög in og frýsuðu i sífellu: „Riddu
oss, ríddu oss öllum hvort sem þú vilt.”
GREIDID ATKVÆDI YDAR MED

Albert T. Davidson
FYRIR

BÆJARFUILTRÚA

Í 4. KJÖRDEILD.

Greiðið atkvæði með

COCKBURN fyrir Board of Control

——————————————————————————

Merkið atkvæða seðilinn þannig:

J. W. Cockburn X

HEIDRUDU KJÓSENDUR!

Þér eruð virðingarfyllst beðnir að beita áhrifum yðar og greiða atkvæði með

GARSON

                        OG RAF-AFLS-STÖÐINNI.

Látið ekki þá menn blekkja yður, sem hafa getað tafið fyrir því að
hinn ákveðni vilji bæjarbúa í þessu málí fengi framgang. —

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 01:48:13 2023 (aronsson) (diff) (history) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/aflstodin/0006.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free