- Project Runeberg -  Andvökur. Eftir Stephan G. Stephansson / I. 1868-1907 /
51

(1909-1923) Author: Stephan Guðmundsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Þá skildi hann við þau bæði ber
Og bauð þeim að fylla upp jarðeign hér.
Og lét þau í garðinn að leika sér.

1906

Verðlaun.

Gull og gæði

Gleðja skáld og fagna kvæði.
Þó það vildi um vænni laun
Velja mega í kvæða-raun:
Framhlaupið í fylking hverri,
Fyrsta stökk að ryðja knerri,
Hvar sem ofrar eldi og brandi
Ódygðin, á sjó og landi,
Vopnfært vera,

Ljóðið sitt úr býtum bera.

Útþynningar.

List er það líka, og vinna,
Lítið að tæta upp í minna,
Altaf í þynnra þynna
Þynkuna allra hinna.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 02:15:02 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/andvokur/1/0057.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free