Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
 << prev. page << föreg. sida <<      >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has been proofread at least once.
(diff)
(history)
Denna sida har korrekturlästs minst en gång.
(skillnad)
(historik)
»Nei, langt frá, sú hugsun er hégómi einn,«
                í hálfgletni svaraði ég dræmt;
»Ef dýrindis stóllinn þinn ataðist út
                og altarið, það væri slæmt!
Því Ragnheiður litla hún lagði til þess
                svo langmest, er »gjöfin« var keypt.
En hvernig hún hafði það unnið sér inn,
                við aldrei við því höfum hreyft!
Og er ekki minnkun að mögla um það nú
                að muna henni þvílíka gjöf
Að skilnaði efstum, fyrst alt, sem hún þarf,
                er einungis: venjuleg gröf?
Nei, báðir við komum þar; hver helzt hún varð
                og hvort heldur ill eða góð,
Með kyrkjunnar uppreisn og yflrbót þú,
                en eg með mín hálfkristnu ljóð.«
Hér slitnaði samtalið — konan hans kom
                inn hvatleg og settist oss hjá.
Og te-ið og hvíldin var henni víst holt,
                því hraustlegri var hún að sjá.
Þó vóru eins og hnökrar í hrafnsvartri brún
                og hæpið að ráða því úr,
Hvort blikan í augunum boðaði storm
                þeim blökku, eða stóð hún af skúr.
Ið jarpleita hárið um hnakkann var teygt
                úr hringum og snúið úr lið,
Og hæverskugríman að fullu ei féll
                ið fjörlega andlitið við.
 << prev. page << föreg. sida <<      >> nästa sida >> next page >>