- Project Runeberg -  Andvökur. Eftir Stephan G. Stephansson / V. 1908-1923 /
130

(1909-1923) Author: Stephan Guðmundsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Eins og þessi völlur hérna vottar.

Viss er reynslan, aldrei var hún gleggri.

Hitt var, eg gekk—samkvæmt lands míns lög-

um —

Lærðaskólann í sem kendi að myröa.

Mér var enginn munur á því, lagsi,

Manndráp eru skyldunám hjá okkur.

Stríð var kveikt upp, eg í herinn heimtur,

Hefði eg afsagt, var eg sömu stundar
Drottinssviki, dauðamaður sekur
Dæmdur svo af herrétti, og skotinn.

Eg á börn og vildi voga að lifa
Vegna þeirra. Stríð er opinn dauði,

En þar verður stundum feigum forðað,

Fyrir herdóm aldrei. Stríðið kaus eg.

Þú hefir sjálfsagt sjálfviljugur hervæðst
Sjálfboðinn í óherskyldu landi?”

*



“Hlutdeild mín í hernað’ þessum, faðir,

Hún er svipuð þinni. Áður stríðið
Skall á, vóru verkaföll í landi,

Vinnuekla, kauplækkun og dýrtíð.

Heimurinn sagður ofbirgur af öllu
Öðru en gjaldi, sveltan stæði af nægtum.
Lánardrotnar heimsins liafa vitað,

Hvað bjó undir stjórnar-kápum ríkja:

Stærra veð í fjárhags-þrælkun fólksins
Festa mætti, taka í skulda-gisling

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 02:15:36 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/andvokur/5/0134.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free