- Project Runeberg -  Eimreiðin / III. Ár, 1897 /
1

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

[Líki annaðhvort öllum eða engum allt, sem stendur í EIMR., þá er hún ónýt.]

Skipun alþingis.

Og fýsi þig yfir til framtíöaiiands
og finnist þú vel getir staðið,
þd Idttn ekki skelfa þig leiðsögu hans,
sem leggur d tœpasta vaðiö.

Þ- E.

Íjví hefur optsinnis verið hreyft í íslenzkum blöðum, að
skipun alþingis væri ekki sem heppilegust. Því hefur verið hreytt
út sona hjáleiðis án nokkurrar gagnrýni, en mönnum hefur ekki
þótt ómaksins vert að reyna að sýna fram á, í hverju skipun þess
væri ábótavant eða hvernig hún ætti að vera. Skipun alþingis
hefur þó svo mikla þýðingu íyrir þjóðlíf vort, að það virtist
nokkru þarfara fyrir blöðin, að verja nokkru rúmi til þess að ræða
hana rækilega, en að fylla dálka sína með staðlausu rausi um
land-ráð og annan ófögnuð um hvern þann, sem ekki vill sigla
mögl-unarlaust í kjölfar einhvers ákveðins »skrílkóngs« (EIMR. II, 54)
og jarla hans, er byggja veldisstóla sína á því, að smjaðra fyrir
al-þýðunni og kitla tilfinuingar hennar, en gera þó sitt ýtrasta til
að rýja hana inn að skinninu.

Það er hvorttveggja að flestum af blöðum vorum er e^ki sýnt
um gagnrýni, enda minnumst vjer ekki að þau hafi haft annað
verulegt út á skipun alþingis að setja, en að þar væru of fáir
bændur og of margir prestar Að færa rök fyrir þessari
útásetn-ing, hafa menn ekki borið við, og á aðrar stjettir en þessar tvær
hefur ekki verið minnzt. Það virðist þó auðsætt, að þegar um
skipun alþingis er að ræða, jþá verður að taka tillit til allra þeirra
stjetta og atvinnuflokka, sem til eru í landinu. Alþingi er
full-trúaþing allrar þjóðarinnar, og eigi því skipun þess að vera
full-komin, verður hver stjett og atvinnuflokkur að eiga fulltrúa á því
í nokkurn veginn rjettu hlutfalli við atkvæðamagn hvers þeirra um

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0011.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free