- Project Runeberg -  Eimreiðin / III. Ár, 1897 /
2

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

sig. Sje þingið þannig skipað, eru líkindi til að það bæði taki í
löggjöf sinni nokkurn veginn jafnt tillit til allra stjetta og hafi þá
þekkingu, sem er nauðsynleg til þess að geta gert það. En sje
aptur þingið þannig skipað, að sumar stjettir eigi engan fulltrúa
á þingí úr sínum flokki, en aðrar miklu fleiri, en þeim ber, þá
er jafnan hætt við, að ekki verði eins mikill jöfnnður i
löggjöf-inni sem ella, bæði af því að flestir menn eru nú eiau sinni
fæddir með þeim ósköpum, að vera gjarnast að skara eld að sinni
köku, — ef ekki handa sjálfum sjer, þá handa sinni stjett — og
líka vegna þekkingarskorts á hag og þörfum þeirra stjetta, sem
engan talsmann eiga á þinginu. Því ójafnara sem hlutfallið er
railli iulltrúanna og hinna ýmsu stjetta í landinu, því hættara er
við ójöfnuði í löggjöfinni.

Samkvæmt manntali á Islandi árið 1890 vóru íbúar landsins
þá 70,927, og breyting sú, er síðan hefur orðið á fólkstölunni, er
svo óveruleg, að hún er ekki takandi til greina. Sje nú þetta
nianntal lagt til grundvallar fyrir skipun alþingis, þar sern 36
þing-raenn eiga sæti, ættu nálega hver 2000 manna, eða því sem næst
(um 1900), að eiga sjer fulltrúa á þinginu. Og væri nú
þess-um fulltrúum skipt hlutfallslega á allar þær stjettir og
atvinnu-flokka, sem til eru í landinu, yrði sú skipting, þegar miðað er við

tjeð manntal, á þessa leið:

höfðatala fulltrúar

bændur og aðrir, sem lifa af landbúnaði .... 45,730 ... 24

sjómenn......................12,401 ... 6

embættismenn og aðrir, sem njóta launa af

landsfje.................... 3,094 ... 2

daglaunamcnn og aðrir, sem enga ákveðna at-

vinnu hafa.................. 3,766 ... 2

handiðnamenn................... 1,868 ... 1

verzlunarmenn................... 1,737 ■ ■ • 1

þurfamenn og hreppsómagar.......... 2,323 ... »

fangar eða sakamenn............... 8 . . . »

70,927 36

í þessu yfirliti er að vísu að eins miðað við höfðatöluna í
hverjum atvinnuflokki, en ekki við tölu þeirra, sem
kosningar-rjett hafa. Petta þarf þó varla að raska fulltriiahlutfallinu í neinu,
því eptir því sen: hagur og ástæður manna eru á íslandi, virðist

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0012.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free