Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
mega gera ráð fyrir því, að nokkuð sje jafnt á komið með
hlut-fallið milli höfðatölu og kjósenda í hverjum flokki. Þó mun mega
gera ráð fyrir, að í embættismannaflokknum sjeu tiltölulega fleiri
kjósendur en í hinum flokkunum, enda er tekið tillit til þess í
yfirlitinu, þar sem þessum flokki eru ætlaðir 2 fulltrúar, þótt
hon-um beri ekki nema i1^ samkvæmt höfðatölunni. Pá er það að
athuga, að þó að þingmennirnir sjeu alls 3 6. þá eru ekki nema
30 af þeim þjóðkjörnir. En þetta ætti ekki að þurfa að gera neinn
glundroða, því væri sú regla viðurkennd, að hver stjett eða
at-vinnuflokkur í landiriu ætti að eiga sjer fulltrúa á þinginu í rjettu
hlutfalli við atkvæðamagn hans, þá er svo sem auðvitað, að
stjórn-inni bæri líka að taka tillit til þess við kosning hinna konungkjörnu
þingmanna. Stjórninni ætti ekki síður en öðrum að vera
um-hugað um það, að skipun þingsins yrði svo fullkomin sem
unnt er.
Líti maður nú hins vegar á’, hvernig hið núverandi alþingi
er skipað, þá sjáum vjer, að þar sitja 12 bændur (2 þeirra
hálfgerð-ir embættismenn: umboðsmenn í þjónustu landsstjórnarinnar) og
24 embættismenn (2 þeirra þó ekki reglulegir embættismenn, heldur
starfsmenn hins opinbera, launaðir af landsfje). Það er með
öðr-um orðum, að 2/3 allra þingmanna eru embættismenn og 1/3
bændur. Aptur er þar enginn úr hinum atvinnuflokkunum: enginn
sjómaður, enginn handiðnamaður, enginn verzlunarmaður og
enginn daglaunamaður. Af embættismönnum eru 9 prestar1 (8
prest-ar + biskupi), 8 lögfræðingar, 4 skólakennarar, 1 læknir og 2
starfsmenn í þjónusu landsins (bankastjóri og bókavörður).
Það virðist nú liggja í augum uppi, að það er eitthvað öfugt
við ’þessa skipun þingsins. Einkum má það gegna furðu, að
sjó-mennirnir (sjávarbændur) skuli geta unað því, að eiga engan
full-trúa á þingi úr sinum flokki, þótt fiskiveiðarnar sjeu annar helzti
atvinnuvegur landsins og þeir, sem sjósókn stunda, rúmlega 1/ß
allra landsbúa. Það er og eitthvað bogið við það, að
verzlunarmenn-irnir skuli engan fullrúa eiga á þingi úr sínum flokki, því sú
at-vinnugrein, sem þeir reka, er í öllum löndum talin einhver hin
þýðingarmesta fyrir framfarir þjóðanna. Mál, sem snerta verzlun,
koma og fyrir á hverju þingi, og er því vöntun á verzlunarfróð-
1 Eða jafnvel 10, ef prestaskólakennarinn, sem er prestvígður maður, cr tal
inn með.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>