- Project Runeberg -  Eimreiðin / III. Ár, 1897 /
17

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

17

Hún hrökk upp löðrandi sveitt — stórviðrið ólmaðist á
baðstof-unni eins og þakið væri lamið ótt og títt, nieð blautu skinni, og
það hrikti i rjáfrinu. Svo sló öllu niður sem snöggvast. Svo
hvein aptur hvassviðrið yfir, en hægra og þunglamalegra,
hvin-andi eins og sorgardjúp stuna, langt sótt ofan í náttúrunnar
brjóst. Svo heyrðist henni eins og það væri gengið um bæinn —
eins og það kæmi skuggi á gluggann, likt og einhver grúfði sig
niður að honum, — henni fannst hún heyra svo þungt andvarp
úti fyrir, eins og helstunu deyjanda raanns — — hún þaut upp
úr rúminu og út í gluggann; skugginn hvarf—stormurinn og
lamviðrið lamdi á glerinu, enn þá stórgerðara en áður.

Henni var þungt, svo þungt fyrir hjarta, eins og hörmung
heillar mannsæfi lægi ofan á henni, og kreysti saman brjóstið;
bún var nú orðin sannfærð um, að þeir feðgar væri drukknaðir,
og lægi kaldir á mararbotni.

Hun sofnaði ekki það sem eptir var næturinnar. Hugsunin
um þetta, þenna missi, sem hún átti vísan, um einstæðingsskap
sinn og barnanna hennar ungu, stóð henni fyrir hugskotssjónum
eins og óaleg framtíð, sem ekki væri hægt að grylla fram úr. Hún
vissi það vel, hver mundi verða sjer erfiðastur.

— Um morguninn var veðrið orðið vægt; það var að eins
þjettingsgola, regnbólstrarnir vóru horfnir. Náttmálahnúkurinn og
Lambárdrögin vóru hvítgrá; það hafði snjóað þar um nóttina.
Það var fyrsta fjallagráðið það sumar.

Fólkið fór inn á flóa um morguninn, til þess að halda áfram
við að koma heyinu úr forinni. Að eins ein stulka var eptir heima
hjá Helgu. Hún gåt einhvernveginn ekki fengið af sjer að vera
ein heima, hvaða frjettir sem koma kynnu.

Hún átti reyndar ekki von á nema einum frjettum, — og þær
vissi hún þegar fyrir.

Undir hádegisbilið komu þrír menn ríðandi utan veg; tveir
þeirra stefndu heim að hjáleigunni við túnfótinn, en einn þeirra
stefndi heim.

Það var presturinn.

Helga var úti; hún vissi í hverjum erindum hann mundi vera
kominn.

Hann heilsaði henni með döpru bragði; hún tók kveðju hans,
og bauð honum inn.

Þau gengu til stofu.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0027.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free