Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
i8
Presturinn fór að ympra á því, að hann kæmi hingað sem
sorgarinnar sendiboði, og væri það þung ganga fyrir sig að vera
á ferð í slíkum erindum.
»Þjer þurfið ekki að hafa mörg orð, prestur minn,« svaraði
Helga rólega, jeg veit þjer færið mjer fregnina um að þeir sje
drukknaðir feðgarnir hjerna.«
Prestur kvað það satt vera, og var auðsjeð, að hann var
feg-inn, að þetta sorgarerindi gekk svo greiðlega. Svo gåt hann þess,
að þeir hjáleigubændurnir hefðu komizt af, og mundu þeir koma
heim, og greina nánara frá atvikum, er þeir hefðu heilsað heima
hjá sjer.
Þau töluðu litla stund saman, þangað til riðið var í hlaðið;
vóru það þeir Þorsteinn og Halldór, hjáleigubændurnir.
Helga gekk út á móti þeim, og bauð þeim að setjast inn.
Hestarnir fóru út á túnið og fóru að narzla.
Rjett í þessu kom stúlkan að innan með kaffi handa gestunum.
Pegar það var búið, tók hún þá tali.
Þorsteinn varð fyrir svörum. Hann var vanur þvi, þegar svo
stóð á. Halldór gaf að eins orð og orð í.
»Jú,« sagði hann og ræskti sig og spýtti, »þetta var ekki
veð-ur, sem hann rauk á með eptir miðjan daginn, eða öllu heldur
úr nóninu.«
»Já, úr nóninu var það« skaut Halldór inn í.
»Við fórum úr kaupstaðnum svo sem jöfnu báðu, dagmála og
hádegis, og höfðum ekki annað í bátnum enn kúfortið, sem hann
Jón sálugi var með, og tvær kornmatartunnur; við Halldór áttum
sína kornhálftunnuna hvor, sem hann hjálpaði okkur um inn frá,
svo sem fyrir ferðina —.«
»Svo sem fyrir það við fórum með honum« bætti Halldór
inni í »en hina átti hann víst sjálfur. »Svo rørum við út með,
þangað til hann fór að kalda; þá settum við upp segl, og
sigld-um, þangað til við vórum komnir út fyrir Flúðir, og vórum að
beygja inn með aptur. Þá rauk hann á nokkuð svo á þvervestan,
en þó gátum við haldið okkur nokkuð inn eptir, en æði illa gekk
það þó samt. Þar feldum við seglið að mestu leyti, framan við
Beinárhyrnuna, því þar fór hann að verða svo djeskoti byljóttur,
og fórum að reyna að róa, og pössuðum okkur að vera sem næst
landi. Jón sálugi passaði seglið, það lítið sem það varð notað,
Bjarni stýrði, en við reyndum að róa, og svona börðum við inn
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>