- Project Runeberg -  Eimreiðin / III. Ár, 1897 /
44

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

44

þessum síðastnefnda stað lauk Schiller við »Don Carlos« og um sama
leyti orti hann hið alkunna kvæði sitt, »Ati die Frende« (til gleðinnar),
sem ber vott um ánægju hans yfir lifi því, er hann þá lifði. Taldi hann
þessi ár (1785—87) með hinum sælustu æfiárum sinum. »Don Carlos«
birtist á prenti 1787. Mætti kalla þann sjónleik fagnaðarboðskap hins
heimsborgaralega (kosmopólitiska) anda, og lýsir liann baráttu
hugsjóna-legs framfaraanda við hle}’pidóma harðstjórnarinnar bæöi í trúarlegum
og pólitiskum efnum. Par sem hinir fyrri sjónleikir Schillers eru i
óbundinni ræðu, þá er þessi i bundinni, og hefir hann talsverða
yfir-burði yfir þá, bæði að siðferðilegum háleitleika, formfegurð og orðprýöi,
svo fjærri sem hann er sögulegum sannleika i meðferð efnisins; en það
hefir Schiller gengið til að víkja svo langt frá sögunni, að hann með
þvi einu móti gat látið hinar háleitu mannfrelsishugmyndir sinar koma
eins skýrt og hrifandi í ljós eins og hann vildi. Fráþessum tima eru enn
fremur hin ágætu lýrisku kvæði hans, »Die Kiitisthr« (listamennirnir) og
»D/’e Götter Griechenlands« (Grikklands goö), og er likt mót á þeim og
»Don Carlos,« að þau bera langt af hinum fyrri kvæðum hans og votta
samsvarandi æöra stig í lýriskum kveðskap. Par meö endar fyráta
tima-bil í skáldlifi Schillers.

1787 hafði hann farið til Weimar og dvalið f>ar um tíma; tóku
þeir Herder1 og Wieland honum einkar vel, en Goethe var þá á
ítaliu-ferð sinni. Sömuleiðis kom hann til Jena og kynntist þar ýmsum
lærð-um mönnum. Hann var nú mikið farinn að setjast og andleg ró og
samræmi komið yfir huga hans, eins og lika lýsti sjer i skáldskap hans;
var hann og með miklum áhuga farinn að leggja stund á sagnafræði og
mjög mikið las hann forngriska höfunda, einkum Homer, en reyndar i
þýðingum; kvaðst hann þurfa þess mjög, til að laga og hreinsa
skáldskapar-smekk sinn, sem hefði verið farinn að fjarlægast sanna einfeldni. I
Rudolstadt kynntist hann yngismeynni Charlotte Lengefeld, er síðar varð kona
hans, og þar hitti hann Goethe að máli í fyrsta sinn, en ekki dró
til vináttu meö þeim í það skipti. Samt átti Goethe mikinn pátt i því,
að Schiller var skipaður sögukennari við háskólann i Jena. Átti Schiller
það að þakka hinu nýútkomna söguriti sínu, »Geschichte des Abfalls der
Niederlande« (Uppreisnarsaga Niðurlanda), sem mikið þótti til koma. Var
þó Schiller ekki sagnfræðingur í verulegri merkingu orðsins, og ekki
verður talið til vísindalegrar söguritunar, það sem hann hefir ritað í
þeirri grein, en samt sem áður hafa sögurit hans haft afarmikla
þýð-ingu sakir snildarlegs frásögustýls og andrikis og sakir hinnar eldheitu
tilfinn-ingar fyrir frelsi, rjettlæti og sannleika, sem lýsir sjer i þeim hvervetna.

Árið 1790 kvæntist Schiller Charlotte. Lengefeld og var hún hin
ágætasta kona og hjónaband þeirra hið farsælasta. Hjarta hans, sem
hafði ekki farið varhluta af ýmsum ástarástríðum fann nú unaðsríka
hviid í ástriku heimilislifi, og hafði það hin beztu áhrif á öll hans
and-legu störf. Hjelt hann nú áfram hinum sögulegum iðkunum sinum, sökkti
sjer niður í heimspeki Kants og samdi ýmsar heimspekilegar og
fagur-fræðilegar ritgjörðir. Sögu þrjátíu ára striðsins (»Geschichte des dreissig-

1 Undireins og Goethe var kominn til valda hjd hertoganum, hafði hann
fengiö hann til að gera Herder að hirðpresti og »generalsuperintendent«
(æðsta 3’firboða kennidómsins).

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0054.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free