Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
5§
nýlega fengið brjef frá Miss Foulke á islenzku, og má af því sjá, að
hún hefur lagt alúð við námið. I sumar hefur hún i hyggju að ferðast
heim til Islands.
FráYork Harbour fór jeg þann 19. júli síðdegis og kom til Montreal
næsta morgun kl. 7’/2. Stóð jeg þar við tæpar 2 klukkustundir og hjelt
svo áleiðis til Winnipeg. Fór jeg eins og lög gera ráð fyrir meö
eirn-lest Kyrrahafsbrautarinnar (The Camdian Pacifw Kaihuay, i daglega tali
kölluð CPR, frb. Sipiar). Sú braut liggur frá hafi til hafs yfir þvera
Ameriku og er eitt af hmüm mestu stórvirkjum heimsins. Var þar í
mikið ráðizt, er sú braut var ger, þvi hún liggur víöa gegn um fjöll,
kletta og klungur, o^ var þvi kostnaðurinn ógurlegur— 1O0 miljónir
dollara (■= 370 milj. kr.) segir amerískt timarit eitt, sem jeg hef í
höndum, og lagði stjórn Kanada fram sem styrk til hennar 25 milj.
dollara i peningum og 25 milj. ekra (acres) af landi fram með
braut-inni. Pegar brautin var lögö, var ekki gott útlit fyrir að hún fengi
mikið að starfa, þvi hún lá mestmegnis gegn um óbyggðir. En önnur
hefur orðið raunin á. Jafnótt og brautin lengdist og tók til starfa, var
eins og flutningsmagniö sprytti upp úr jörðunni með einhverjum
óskiljan-legum töfrakrapti. Löndin tóku óöum að byggjast, og þó brautin sje
tæpra 15 ára gömul (reyndar fyrst fullger 1886), þá er nú svo komið,
að frarn með henni allri er risin upp heil röð af borgum, bæjum,
þorp-um og býlum, sem veita henni nóg að flvtja og nógar tekjur. Peir
menn, sem i þetta fyrirtæki rjeðust, vóru svo skynsamir, að þeir sáu,
að járnbrautin mundi skapa flutningsmagniö, og hún yrði því að koma
fyrst.—Betur að menn væru jafnglöggskyggnir á Islandi!
Winnipeg liggur hjer um bil miðja vega milli Kyrrahafs og
Atlants-hafs, og er leiðin þangað frá Montreal að mörgu leyti skemmtileg
yfir-ferðar, einkum fram með Efravatni (Lake Superior). Þó kveður mest að
náttúrufegurðinni á vesturhlut brautarinnar, nær Kyrrahafinu. Væri ekki
vagnarnir eins vel út búnir, eins og fieir eru, væri það náttúrlega samt
mjög þreytandi, að ferðast svo langa leið, marga daga samfleytt. En þar
er sjeð fyrir flestu, er að þægindum lýtur. Vagnarnir eru þrenns konar.
Beztir eru svefnvagnanrir, sem svara til 1. vagnrýmis á járnbrautum hjer
í Danmörku, og á daginn eru mjög likt út búnir. En það skilur, að á
nóttunni má breyta legubekkjunum í regluleg rúm, þar sem menn geta
háttað og sofið, og yfir þeim má búa upp önnur rúm á vængsvölum,
sem hleypt er niður úr vagnrjáfrinu, svo aö rúmaröðin verður tvísett
til beggja handa í vagninum. Fyrir framan rúmin eru hengdir rekkjureflar
fi’á rjáfri til gólfs, og bak við þá geta menn klætt sig og afldætt, án
þess að kæra sig um, þótt fólk sje á stjái i vagninum. A daginn er
vængsvölunum hleypt upp undir rjáfrið, og eru þá öll sængurklæði geymd
þar, milli þeirra og rjáfursins. Þá er 1. vagnrými, sem kallað er, og er
útbúnuður þar svipaður og i 2. vagnrými á brautum í Danmörku, en
sætin þó varla eins þægileg, einkum ef menn vilja halla sjer út af. I
þessu vagnrými verða menn að sofa i sætum sinum, nema menn vilji
leigja sjer rekkju i svefnvögnunum og borga fyrir hana aukreitis. Þriöja
tegundin er 2. vagnrými, sem samsvarar 3. vagnrými hjer. En á
Kyrra-hafsbrautinni er pó þetta vagnrými miklu þægilegra og betur útbúið en
almennt gerist, því þessum vögnum má þar brevta í svefnvagna með
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>