Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
63
er bæði rekur verzlun og landbúnað. Hefur hann byggt sjer mjög snoturt
hús, og svo er húsbúnaðurinn í því prýðilegur, aö jeg þori að fullyrða,
aö annar slíkur er ekki i húsi nokkurs embættismanns i Rvik. I
heim-leiðinni kom jeg við hjá Arna bónda Sveinssyni (úr Suðurmúlasýslu) og
skoöaöi hús hans, sem þá var i smiöum. Er þaö allmikið hús og i
líkum stil og hús Friöjóns. Paö er úr timbri, en veggirnir kalkaðir
innan. Undir öllu húsinu er steinkjallari, 10 feta djúpur, og er i honum
hitavjel, sem leitt er frá heitt lopt, til þess aö hita meö allt húsið. Svo
er og i húsi Friðjóns og viöar. Pann 30. hjelt jeg kyrru fyrir heima,
og komu þá til aö heimsækja mig Sigurður bóndi Kristófersson á Grund
og prestarnir sira Hafsteinn Pjetursson, fornvinur minn og skólabróöir,
nú prestur i Winnipeg, og sira Jón Clemens, prestur þeirra Argylinga.
Er hann bráðungur maöur fjörlegur og gervilegur. Flutti hann fyrir 11
árum (þá 11 ára aö aldri) meö foreldrum sinum trå Rvik til Chicago,
2. Eimþreslavjel.
og þar hefur hann numiö skólalærdóm. Skemmtum viö okkur allir lengi
dags viö samræöur.
Næsta dag (31.) var samkoma mikil á Grund. Eiga Argylingar þar
samkomuhús stórt, en svo var mannfjöldinn þar mikill i þetta sinn, aö
rúmið þraut i húsinu, og varö aö halda samkomuna undir beru lopti.
Var þaö heldur ekki neitt neyðarúrræði, þvi veöur var gott. Fóru
ræöu-höldin fram i skógarrjóöri þar rjett hjá, skammt frá stööuvatni, en aörar
skemmtanir (hlaup, stökk, glimur og reipdráttur) á grænni flöt viö vatniö.
Tóku jafnt konur sem karlar (eldri og yngri) þátt i íþróttunum, og var
útbýtt verölaunum til sigurvegaranna. Ræöur vóru haldnar margar (og
mörg hlý orö til íslands töluö), t. d. af Hafsteini Pjeturssyni, Friöjóni
Friörikssyni, Siguröi Kristóferssyni, Birni Jónssyni (bróður Kristjáns skálds),
Kristjáni Jónssyni (Björnssonar frá Hjeöinshöföa), mjer o. fl. Kvað mest
að ræöu sira Hafsteins, sem var flutt af mikilli mælsku og andagipt.
Par var mjer og flutt snoturt kvæöi af Sigurbirni Jóhannessyni. Inni i
fundarhúsinu fóru fram veitingar. A samkomunni vóru á að gizka 6—700
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>