- Project Runeberg -  Eimreiðin / III. Ár, 1897 /
62

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

62

evjarsýslu). Eru hjá honnm húsakynni góð og binn mesti myndarbragur
á öllu. Þar var stór kornhlaða, er í vóru svo miklar birgðir af korni
(hveiti og höfrum), að varla mundi meira í meðalkaupstað á Islandi rjett
eptir skipskomu, og var allt þetta korn frá fyrra ári. Hafði honum þótt
hveitiverðið of lágt þá, og því ekki viljað selja, en ekki svo á nástrái,
að hann þyrfti þess. Hefur hann og óefað haft mikinn hagnað af þessu
ráðlagi, því í haust var mjög hátt verð á hveiti, og þá hefur hann
sjálf-sagt selt allar birgðir sínar. Hjá honum sá jeg og rekna heim um 40
nautgripi, og svo mikinn sæg af alifuglum, að jeg fjekk ekki tölu á
komið. En þó margt væri merkilegt að sjá hjá honum, þótti mjer þó

1. Hús Arna bónda Sveinssonar í Argvle.

einna mest vert um stelpu eina litla, sem liann átti. Þykist jeg varla
hafa sjeð jafnfagurt barn, og þótti mjer mein, að sjá hana berfætta (og
þvi með óhreina fætur), en það kvað alls staðar vera siður í þeim
byggð-arlögum, að låta börn ganga berfætt á sumrum. Pann 28. heimsótti jeg
Onnu systur mína, sem er gipt Sigurði bónda Antoníussyni (úr
Suður-múlasýslu). Búa þau 1 nánd viö bæinn Baldur, og kom jeg þar við í
leiðinni. Hjá þeim var slegið upp veizlu mikilli og vóru þar margir
aðkomandi.

I heimleiðinni kom jeg við hjá Baldvini bónda Benediktssyni (?) og
skoðaði hús hans, snoturt og rúmgott, er stendur utan í hæð einni mikilli,
sem sjá má af um alla sveitina. Næsta dag (29.) var sýning 1 Glenboro,
og fór jeg þá þangað. Par heimsótti jeg Friðjón kaupmann Friðriksson,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0072.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free