- Project Runeberg -  Eimreiðin / III. Ár, 1897 /
71

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

7i

hefði ekki verið annar eins snilldarmaður og hann var. Ljek hann viö
hvern sinn fingur og talaöi kjark i alla, pegar allt var sem iskyggilegast,
og mun honum þó ekki hafa verið rótt innanbrjósts. Var hann hiö
mesta ljúfmenni og framkoma hans öll fyrirmynd.

Pann 24. ágúst komumst viö meö mestu herkjum til Liverpool eptir
nálega 13 daga ferö. Haföi jeg ætlaö mjer aö ná par i landskipiö
Vestu, og fara meö henni til Hafnar, en hún var nú farin fyrir rámum
sólarhring og höföum viö mætt henni daginn áöur Pótti mjer þá leitt
aö biöa, unz önnur skipsferö fjelli, enda var jeg búinn aö fá nóg af
sjóvolkinu; tók jeg þvi paö til bragðs, aö balda meö eimlest suður
England, fram hjá Lundúnum og austur til Harwich. Þaðan fór jeg
meö skipi yfir til Hollands og svo með eimlest norður Holland og
Þýzka-land til Hamborgar og kom við á leiöinni i Haag, Amsterdam, Miinster,
Osnabrück, Bremen og víðar. Frá Hamborg hjelt jeg til Hafnar (sömu
leiö og þegar jeg fór af staÖ) og kom pangaö þann 26. ágúst kl. 10
ár-degis. Haföi jeg pá veriö rjetta þrjá mánuði burtu, en frá Liverpool 4
stundum fátt i 2 sólarhringa, og kom því degi fyr til Hafnar en Vesta,
enda var og ferðin miklum mun dýrari, en ef jeg heföi meö henni
farið.

Jeg haföi haft gaman af mörgu i þessari ferö, og mörgu kynnzt í
háttum og lífi Amerikumanna, sem sannarlega væri frásagna vert, bæöi
af viðtali viö íjölda Amerikumanna á leiðinni (karla og kvenna) og
eink-um viö 6 vikna dvöl mína á austurströndinni. En öllu sliku hef jeg
oröiö aö sleppa vegna rúmsins. Jeg hef orðið aö låta mjer nægja að
skrifa stutta ferðasögu og minnast nokkuö á hag landa minna vestan hafs,
og þó miklu minna, en jeg hefði viljað, þvi mest haföi jeg gaman af
aö beimsækja þá. Gladdi paö mig hjartanlega að heyra, hve innilegt
hugarpel allur meginþorri þeirra ber til íslands. Paö hefur fariö með
þá eins og opt reynist, að sönn lifandi ættjaröarást vaknar þá fyrst fyrir
alvöru, er menn fjarlægjast strendur fósturjaröarinnar. Hefur þeim nú
gefizt tækifæri á aö sýna það i verkinu með jarðskjálftasamskotunum,
að þeir vilja taka þátt í kjörum landa sinna austan hafs. Þaö gladdi mig
og að sjá, hve velliðan peirra er almenn, að því er jeg fjekk bezt sjeð.
Auðvitaö ber pess að geta, aö jeg kom ekki nema í tvær af hinum
beztu nýlendum og svo i höfuðstaðinn. Um binar aðrar nýlendur get
jeg því ekkert boriö, en sjálfsagt eru þær allar mun ljelegri, nema
ný-lendan í Minnesota, sem mjer var sagt, að væri lengst á veg komin og
þar menn rikastir. Þess ber og aö geta, aö bæöi var dvöl tnín stutt, og
jeg kom þar um hásumartímann, þegar allt stóð i sem mestum blóma,
og auðvitað allt gert til þess, aö sýna mjer heldur hið betra en hið
lakara. En pótt svo væri*, hygg jeg, að mjer skjátlist varla í þeim dómi
minum, aö þessar nýlendur eigi mikla og glæsiiega framtiö fyrir
hönd-um og að flestir buendur par muni brátt komast i álnir. En ekki álit
jeg þaö allt frjósemi landsins að þakka (þó hún sje auövitaö mikil),
heldur miklu fremur þeim dugnaöi, atorku og værklægni, sem mörgum
löndum vorum fyrst hefur lærzt eptir aö þeir komu vestur. Jeg er
sannfæröur um, aö ef sömu mennirnir færu nú að reisa bú á Islandi^
þá mundi búskaparlag þeirra veröa allt annaö, en áöur en þeir fóru
þaö-an, og tvisýnt hvort þeir gætu ekki haft eins mikinn ágóöa upp úr

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0081.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free