- Project Runeberg -  Eimreiðin / III. Ár, 1897 /
70

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

70

og opt andvígir hvor öðrum, en þó mestu mátar. Var þetta kveld mjög
rætt um pólitlk, þvi forsetakosning Bandarikjanna stóð fyrir dyrum, og
tvísýnt hverjir sigra mundu, silfurliðar eða gullliðar. Var Magnús með
silfurliðum eða tvímælmingum og hjelt uppi drengilegri vörn fyrir þá,
en átti þó i vök að verjast, þvi allir aðrir vóru á móti. Eptir langar
og miklar umræður var gengið til svefns, og gistum viö sira Jón um
nóttína hjá Laxdal, en hinir annars staðar i bænum. Næsta dag (8.)
árdegis kvöddum við Sigtryggur þá síra Friðrik og Eirik Bergmann og
sira Jón, sem daginn eptir átti að vigja kirkju á Eyford og því varð að
halda suður aptur, og ókum i vagni til næstu brautarstööva, og fylgdu
þeir Magnús og Laxdal okkur þangað og meira að segja spölkorn með
eimlestinni. Hjeldum við Sigtryggur svo rakleiðis til Winnipeg og
komum þangað um miðjan dag.

I Dakotabyggðinni er fegurra landslag en i Argyle, þvi bæöi eru
þar hæðir meiri og skógur, sem mjög prýöir þar viða. Húsakynni eru
þar og yfirleitt betri og menn yfir höfuö lengra á veg komnir, sem
náttúrlegt er, þar sem byggðin er eldri. En ekki kvaö þó vera minna
um skuldir þar en i Argyle. Viða sá jeg þar ljómandi akra, en tæplega
virtist mjer landiö þó eins frjótt og i Argyle. Garðyrkja sýnist vera þar
meiri, einkum blómrækt, en annars mun búskaparlag allt mjög svipað.
Ekki var laust við, að mjer fyndist meiri fjörkippir i Dakotingum, og
var þó öðru nær, en hægt væri aö bregða Argylingum um deyfð
eða doða.

I Winnipeg dvaldi jeg i þetta sinn að eins eina nótt, og heimsótti
um kveldið og morguninn enn ýmsa landa (t. d. Sigtrygg Jónasson og
konu hans, Magnús Paulson, Bardal, Árna Friðriksson o. fl.). Lagði jeg
svo af stað austur á bóginn meö eimlest þann 9. og fylgdi Sigtryggur
mjer á leið til Selkirk. Kom jeg til Montreal að kveldi þess u. og
stje þegar á skip, þvi út átti að låta í dögun næsta morgun. Tók jeg
mjer far með skipi Beaverlinunnar »Lake Winnipeg«, og þótti mjer
vist-in mun ljelegri, en verið hafði á Normanniu; var þó ekki hægt annað
að segja, en að allur viðgjörningur væri sæmilegur og skipverjar mjög
alúðlegir. Pótti mjer mjög skemmtilegt að sigla niöur St.
Lawrence-fljótiö alla leið til Quebec, þvi þar er nátturufegurð frámunaleg. En úr
þvi kom út úr flóanum þótti mjer gamanið fara að kárna. Mættum við
þá fyrst sæg af hafisjökum, heljarmiklum fjöllum, en með þvi þeir voru
strjálir og veður bjart, virtist þó engin hætta búin af þeim. Verra var
það, að eimvjel skipsins bilaði 5 sinnum á leiöinni, og máttum við
tvi-vegis liggja um kyrt 12 stundir i senn, meðan verið var að gera við
hana. Var eins og nærri má geta kurr i mörgum farþegum yfir sliku.
Þó bætti það mikið úr skåk, að veður var jafnan gott og sjóveiki
engin. I þriðja sinn er vjelin bilaöi, sigldi annaö eimskip fram á okkur,
sem fór sömu leið, og er það sá af Íjóskerunum, hversu ástatt var hjá
okkur, kom það og bauðst til að draga okkur til Evrópu. En með þvi
að skipstjóri hafði von um að takast mundi að gera við vjelina, neitaði
hann þvi boði og sigldi þá hitt skipið sína leið. Tók þá allt
kvenn-fólk meðal farþega að hágráta, enda var ekki efnilegt að vera staddur
með brotna vjel alveg miðja vega milli Ameriku og Evrópu. Hefði og
hræðslan og kurrinn sjálfsagt orðiö enn meiri, ef skipstjórinn (Mr. Taylcr)

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0080.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free