- Project Runeberg -  Eimreiðin / III. Ár, 1897 /
77

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

77

lestraræfingar. Sú aðferð, sem höfð er í kverinu, til þess að leiða athygH
barn-anna að rjettri stafsetning, er einkar hentug. Setningarnar eru valdar þannig, að’
flest það komi fyrir, sem hættast er við, að menn flaski á, án þess þær þó verði’
allt of þurrar og leiðinlegar eða eintómt stagl. Þess er og gætt — þegar því
verður viö komið —, að gera setningarnar svo úr garði, að þær sjálfar skýri fyrir
bömunum, hversvegna eigi að stafsetja svo og svo, annaðhvort með því, að låta
þær benda á, af hverju orðin sjeu leidd (t. d.: »Hve nær ætlar þú að skrýöast
þessum skrúöa?« — »Þeir eru ekki ætíð í raun og veru pjóöhollastir, sem mest
gjöra sjer far um að nå alþýbakylli«), eða með því, að låta koma fyrir í þeim
orð, sem hafa likt hljóð, en ólíka stafsetning (t. d.: »Þegar menn koma nærri
sumum hverum, finna þeir y/inn úr jörðunni leggja upp í íVjarnar á sjer.« —
»Fyrir mitt leyti ætla jeg rjettast, að miða við leitiö og tjörnina; en leitaóu
úr-skurðar hjá öðrum.«) Hve nauðsynlegar slíkar æfingar eru, sýnir sig bezt á því,
að flestir skólagengnir menn — hvað þá heldur aðrir —, sem um þessar mundir
rita í íslenzk blöð og tímarit, kunna ekki að greina birgð (t. d. í: til bráðabirgða,.
heybirgðir, örbirgð o. s. frv.) írá byrgö (t. d. í ábyrgð). — Setningarnar eru yfir
höfuð heppilega valdar og stafsetningin rjett. Þó kemur sumstaðar fram dálitil.
ónákvæmni, sem er miður heppileg. Þannig er í 37. gr. ritað klipa, en í næsta
orði á eptir kleypstu í staðinn fyrir kleipstu (»klípa — kleip« eins og »grípa —
greip«). I 45. gr. er ritað hreifing, en í 37. gr. hreyfa, og er það rjettara. 1 36.
gr. er ritað bitna, en bytna er líklega rjettara, eins og Guðbrandur Vigfússon
hefur bent á í orðabók sinni. I 72. gr. er ritað nýdriö, en ætti að vera nýjdriö
bæði samkvæmt lögum málsins og þeirri rjettritun, sem fylgt er (sbr. nýjan i
sömu setningu). I 43. gr. segir, að Axlar-Björn hafi búið í Öxl i jþingi, en á
að vera i Snœfellsnessýslu. I slíkri bók sem þessari ættu helzt engar prentvillur
að sjást, en þær eru f>ó nokkrar, t. d.: »þenna stóra» ketil« (36. gr.) f. þenna«
stóra ketil, »srytir« (84. gr.) fyrir syrtir, »sjórnar< (91. gr.) f. stjórnar, og
stund-um i f. i (71., 72. og 80 gr.) i £ í (58. gr.) og n f. u (74. gr.). Þessar
prentvillur eru þó allar svo auðsæjar, að þær geta ekki orðið að meini. — Vjer
ráð-um öllum barnakennurum til að fá sjer þetta kver, og þeir munu sanna, að það
mun reynast þeim mikill verkaljettir að nota það við kennsluna. V. G.

UMBÆTUR Á LÆKNASKIPUN LANDSINS. Eptir Guömund Björnsson.
(Sjerprentun úr Andvara 1896). I ritgerð þessari er fyrst rakin saga íslenzkrar
læknaskipunar í fám orðum, og því næst settar fram tillögur um umbætur á
henni. Álítur höf. hæfilegt að skipta landinu í 36 lælmahjeruð, en á annan hátt,
en nú er. I hverju hjeraði vill hann hafa fast læknissetur með sjúkraskýli, er
sjeu 4—5 sjúkrasængur, og reisi hjeraðsbúar hvorttveggja, en læknirinn greiði
þeim leigu af íbúð sinni. Aukalækna vill hann aínema með öllu, en låta hvern
hinna 36 hjeraðslækna hafa 1500—2000 krónur í föst laun og hækka taxtana um
helming. Að því er undirbúningsmenntun lækna snertir, álítur hann
heilbrigðis-högum landsins bezt borgið með því, að låta öll læknaefnin sækja menntun sína
í góðan erlendan skóla, eins og Kaupmannahafnarháskólann. Þetta verði ekki
hrakið, en flestum muni það låta illa í eyrum. Ættjarðarástin olckar sje í þeim
ham þessi árin, að hún hvorki vilji hevra það nje skilja. En ættjarðarástin sje
opt blind eins og aðrar ástir. Hann hafi heyrt menn segja, að þó allt annað
mæli á móti innlendri læknakennslu, þá sje sjálfsagt að halda læknaskólanum af
þeirri einni ástæðu, að hann er íslenzkur og innlendur. En þetta sje fjarstæða.
Það sje tæplega ráðlegt að halda læknaskólanum, svo ónóga menntun, sem hann

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0087.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free