- Project Runeberg -  Eimreiðin / III. Ár, 1897 /
78

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

78

geti veitt. En eigi að gera þaö, þá verði að vinda bráðan bug að umbótum á
honum og leggja til hans stórfje. Læknaskólinn sje nú rjett tvítugur, og vanti
þó enn það, sem talið sje aðallíísskilvrði fyrir alla læknaskóla — stóran góðan og
vel sóttan spitala. Þetta er aöalefnið i þessari gagnorðu og ágætu ritgerð, og
eru tillögur hennar mun skynsamlegrifog hóflegri, en hinar gífurlegu kröfur
lækna-fundarins í Rvík síðastliðið sumar. V. G.

ÞÁTTUR ÚR SÖGU ÍSLANDS Á SÍÐARI HELMING 16. ALDAR.
Eptir porkel Bjarnason. Fróðleg og skemmtileg ritgerð, þar sem lýst er vel
aldar-hætti þess tíma, menning, siðferði, búnaði, verzlun o. fl. Væri óskandi að fleiri
ritgerðir birtust af sama tagi og jafnalþýðlega ritaðar. V. G.

FISKIVEIÐAR ÚTLENDRA HJER VIÐ LAND Á SÍÐUSTU ÁRUM.
Eptir Bjarna Sœmundsson. (Sjerprentun úr »Andvara« 1896). Þessi ritgerð er
einskonar framhald af hinni góðu og þarflegu ritgerð höfundarins í Andvara 1895
og hefur sömu kosti. Sýnir hún ljóslega, hvílík gullnáma sjórinn kringum
Is-land í raun og veru er, ef vjer hefðum kunnáttu og samtök til að nota hana
rjettilega og eins vel og útlendingar gera. Sem dæmi má nefna, að árið 1895,
stunduðu 225 frakknesk skip fiskiveiðar við Island og var afli þeirra 17 miljóna
króna vir bi. Þl vóru 25 af þeim ekki eiginleg fiskiskip, heldur flutningsskip. Á
Á öllum skipunum vóru alls 4252 menn, og hefur þá aflinn á hvern mann verið
um 4000 kr. virði. Höf. bendir og á, að við Island sje koli og heilagfiski margra
miljóna virði, er landsmenn noti sjer mjög lítið. Sem dæmi rná nefna, að árið
1895 stundaði einn danskur »kúttari« kolaveiðar við Isand í 4 mánuði (að
með-töldum ferðum frá og til Danmerkur), og var hreinn ágóði af þeirri veiði (að
frátöldum flutningskostnaði, umboðslaunum og vinnugjaldi við söluna) 7,500
krónur. — Vjer óskum að sjá sem flestar ritgerðir í sömu stefnu frá þessum
unga og efnilega höfundi og vonum, að fjárveitingarvald landsins styðji hann
öfluglega til þess, að halda áfram rannsóknum sínum á fiskiveiðum vorum, þó
sum blöð sjeu svo sanngjörn, að telja eptir þann litla fjárstyrk, sem hann
hing-að til hefur fengið, og kalla liann »bitling«. Það er nú orðinn siður, að kalla
allar smáfjárveitingar til einstakra manna bitlinga, þótt þær sjeu þóknun fyrir
störf, sem unnin eru í þágu alls landsins. Bendir slíkt fremur á smásálarlega
öfundssýki, en á alvarlega umhugsun um, hvað landinu megi að gagni verBa.

V. G.

BOKASAFN ALÞÝÐU heitir ritsafn, sem prentari Oddur Björnsson er
far-inn að gefa út hjer í Höfn. Á það að verða í líking við »Cassels National
Library« og önnur svipuð útlend ritsöfn. Eiga í því að birtast íslenzk og útlend
kvæði, skáldsögur og leikrit, alþýðlegar fræðibækur, frumsamdar og þýddar, og
heimspekileg og söguleg rit. Sem dæmi þess, hverju heitiS er af frumsömdum
fræðiritum, má nefna: »Um bæjabyggingar«, »Rafmagn sem vinnuafl í daglegum
störfum á íslandi«, »Um fiskiveiðar og sjávarútveg«, >Um verklægni«, »Daglegt
líf á íslandi í fomöld«, attt meö myndum. Af heimspekilegum ritum má nefna:
»Sálarfræði«, »Heimspekissögu«, og »Rökfræði«. I boðsbrjefi, sem oss hefur veriö
sent, eru alls talin 60 rit (auk þýðinga eptir fjölda frægra útlendra höfunda), sem
ráðgert er að gefa út, og gætu mörg þeirra sannarlega orðið eiguleg, ef þau yrðu
vel úr garði gerð. Eu forvitni væri oss á, að heyra nöfn höfundanna að
hinum frumsömdu ritum, því vjer vitum ekki þeirra von meðal íslenzkra mennta-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0088.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free