- Project Runeberg -  Eimreiðin / III. Ár, 1897 /
93

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

93

mn Tobías niður á kot, sem hann átti úti í Kefirði, með öllum
tilheyrandi »klausum og formúlum« fyrir eptirlifandi ekkjn með
tilheyrandi rjettindum.

Hreppstjórinn hleypti nokkuð öðrnvísi brúnum ári seinna,
þegar hann um haustið kom út í Skerið og fann Tobías og Mörtu
Malvínu með tvo unga í hreiðrinu.

Þá var nú svo sem engrar vægðar von, ekki um annað að
tala en skilja þau. Hreppstjórinn ógnaði með lagasverðinu brugðnu
og biturlegu; skipaði Mörtu Malvínu heim til föður síns, sæfinnsins,
sem bjó yfir í Seyðisfirði. Þar hafði Tobías áður talið sjer
heim-ili, allt þangað til hreppstjórinn skaut honum undir þakskeggið
þarna á Skeri. Þangað hafði Tobías gaufað bæði í illu veðri og
góðu, þó það væri margra mílna vegur og yfir fjall að fara.
Þang-að hafði hugurinn dregið hann, allt frá þeirri stundu sem hann
sá Mörtu Malvínu fyrst, einusinni þegar hann var á selaveiðum.

En Tobías setti hart á móti hörðu; fór til meðhjálparans og
bað um lýsingar, hjónavígslu og skirn, — aJlt i einni svipan.

Presturinn hlaut að gera hvorttveggja að »pussa« og skira og
hringjarinn að segja já og amen; hann gåt ekki annað, þó hann
væri einn af hreppsnefndarmönnunum.

Klerkurinn talaði mest um lausung og fátækt i vígsluræðunni
— og Marta Malvina grjet; raunar skildi hún ræðuna ekki til fulls;
henni fannst bara, að það væri svo einstaklega sælt og gleðilegt
að vera reglulega gipt, og að eiga tvo drengi, sem hjetu Jóhann
og Anrjes, nöfnin voru svo áreiðanlega viss og rjett á þeim; var
ekki slett eins lauslega á þá eins og á hundinn eða grísinn.

Nýgiptu hjónin reru heimleiðis; drengirnir lágu í skutnum
með hagldabrauðsdúsurnar i munninum, og Marta Malvina var svo
glöð og ánægð með sjálfa sig, að hún gåt ekki stillt sig um að
segja um leið og hún leit til drengjanna.

»Hvað áttu annars mörg börn með konunni þinni Tobias?«

En þau komust nú samt að raun um, að það varð þeim
eng-inn auðnuvegur, að reka hreppstjórann í vörðurnar. Þau fengu
að kenna á því bæði með húsaleiguna og gjöldin, og hefði
»hrepps-kassinn« ekki verið — — það var ekki fráleitt að hann hjeldi
ofurlitið í hemilinn á hreppstjóranum, eins og hann veigraði sjer
við að steypa Tobiasi á höfuðið í hann.

Skýin grúföu sifellt i dimmviðrisbólstrum yfir höfðinu á
Tobíasi, veðrið breytti sjer að visu nokkuð til, en það var samt

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0113.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free