Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
100
öll úrræði, herspori á hverjum stig, sem hann hafði áður
þverfót-að eptir. Það var hörð raun að aptra sjálfum sjer frá að róa næsta
morgun inn eptir til meðhjálparans og biðja um sveitarstyrk. — Nei
og aptur nei; það skyldi þó þurfa að» sverfa fastar að, áður en
hann gerði það.
Hefði nú ekki þetta dauðans fiskileysi verið!
Hvert skipti sem aflinn brást, var alveg bjargarlaust i kotinu;
svo haföi það verið frá því kýrin drapst í vor. Lengi reyndu þau
að treina lifið i henni með þangi og þara; seinast hafði hún bara
mjólkað söltum sjó og blóði. Þá var það eitt kvöld, að þau gáfu
henni dálítið af rúgmjeli, og það langaði marga aðra í það mjel;
botninn í mjelhálftunnunni var líka sannarlega farinn að segja til
sín. — En nóttina eptir drapst kýrin, og það væri synd að segja
að það hefði verið mikill fengur í henni; þetta var ekki orðið nema
bein og sinar, og ketþjóttan þurr og hörð eins og trjespænir. —•
Enginn maður ljet sjer detta í hug að bjóða nokkurt verð fyrir
annað af henni en bjórinn; — en þau á Skeri lifðu samt sældarlifi
meðan kýrslátrið entist, — allur barnahópurinn og Marta Malvina.
Sláturhnifurinn með messingarhólkunum sveif fyrir hugarsjón
Tobiasar; sveif líðandi í lausu lopti, hvarf annað veifið, kom svo
aptur, og sveimaði, beittur og ógnandi, yfir höfði og hálsi þess,
sem svaf og hraut með vangann i volgri öskunni; hann var ekki
nema sex mánaða gamall og uppáhald allra í kotinu; kvennelskur
og hárviss að þekkja hvern mann á Skeri eins og eigin bróður eða
systur, rann hann rýtandi og sótbröndóttur, sviðinn og
sísnuðr-andi mitt á meðal barnanna. Það var hreint ekki skemmtilegt að
slátra honum Matta litla, grísnum; því eins og hann haíði verið
fóðraður alla sína daga með fiskiúrgangi og engu öðru, var hann
heldur ekki annað en fiskþjótta, garmurinn sá arna.
En stundarhættan sveif burt frá höfði þess, sem hraut i værð
og næði við arinylinn, Matta litla var alveg óhætt.
Tobias lá vakandi og hugsaði og hugsaði; hann hafði engan
nýtilegan hlut að bjóða fram; þeir voru allir saman i löghaldi.
Svo hallaði hann telpunni með mestu gætni fjær sjer í
rúm-fletinu, breiddi skinnfeldinn vandlega ofan á hana, reis hljóðlega á
fætur, gekk út að glugganum og starði út; biksvört vetrarnóttin
lá fast upp að kofanum likt og geysistór múrveggur. Rjett í því
sama sagði einn drengurinn, sem liklega hefur verið búinn að
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>