Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
ioS
Viðmótið og skapferlið hatði breytzt að miklum mun, það var
auðsjeð á öllu. — Þegar þau Tobías fóru, hjeldu börnin á smurðum
brauðsneiðum í höndum, og ein stúlknanna kom hlaupandi á eptir
þeirn með klút, sem hún hafði tekið úr kistu sinni, og gaf hann
einni litlu stúlkunni.
Og frömuður allrar forlagabreytingarinnar, hann Matti litli,
var nú af náð og miskunn keyptur af kaupmanninum og borgaður
ríkulega með mjeli og síld. Hann hafði sýnt svo óyggjandi vissu
fyrir |>ví, að hafa beztu matarlyst og ágætis smekk, þegar hann
komst í rjómagrautinn, að hann var beinlínis tekinn til svíneldis
og lifði þar í vellystingum praktuglega til æfiloka.
»Hreppskassinn« hafði um langa hríð stýrt forlögum Tobiasar;
þeir voru greinilegustu andstæðingar. Meðan Tobías lamdi
and-viðris-blá-barninginn, svo honum lá við spreng, til að forðast hann,
þá lá hann allt af með flenta skoltana til að svelgja hann í sig; en
loksins þegar Tobías fleygði sjer í það gin, þá spúði hann honum
hvæsandi og rymjandi alla götu — til Ameríku.
Snemma í maímánuði var Tobías kominn alfari til
borgar-innar; ferðbúinn til að fara með fyrstu gufuskipsferð vestur um haf.
Hann bar stóran poka á bakinu, kistil í annari hendinni, en
með hinni leiddi hann eina litlu stúlkuna sína; hann labbaði hægt
ofan sjávargötuna og Marta Malvina á eptir með allan hópinn og
bar smá böggla í höndunum og pjáturbolla til að taka matinn í
á vesturförinni. Stóreflis hópur af götustrákum flykktist organdi
og æpandi kring um þau, likt og gargandi mávar yfir síldtorfu.
Gufuskipið lá út á höfninni og þeytti gráum reykjarstólpanum
beint upp úr reykháfnum, og ferjan beið inn við bryggjuna; en
þegar börnin fóru að tinast í hana, tóku strákarnir til að kasta
hverjum snjókökknum á fætur öðrum; snjórinn var svo mátulega
kramur í sólbráðinni.
Tobias stóð hálfboginn og hjálpaði börnunum niður í ferjuna
og sitjandinn horíði svo vel við strákunum, og karlinn var lika
einkennilega þrýstinn og þjóbreiður; þeir, sem hafa lesið rit
Dar-wins, geta sannarlega gert sjer ýmsar getgátur og dregið miklar
likur að því, að sviplik muni að lokum verða þjóin á þeim, sem
mann fram af manni riða á skrifstofustólnum, eða hinum volduga
aðli, sem situr i riddarasöðlinum, hver maðurinn íram af öðrum
í þritugasta lið, og þau voru nú á Tobíasi, þvi allur feðrabálkur
hans hafði þolinmóður þrælkað á bátsþóptunni. Og til þess að
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>