- Project Runeberg -  Eimreiðin / III. Ár, 1897 /
117

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

117

í útnordur og sjáfarólgann sefadist stórum, hvör vindur þó ei vardi
nema litla stund, þá hann smám samann sneri sier til sudurs. I
þessu ó slingradi skipid skielfilega, svo tvær rúdur medal annars
brotnudu, önnur i hurdinni hin í stórum glerskáp. Þegar vid
ætl-udum ad fara ad borda, rauk eg af kipp, sem kom á skipid, i
lopt-ínu yfir kistu sem var milli min og skipsbords (hlidveggsins) og
kom þar nidur á höfudid. Pá mátti læra ád fliúga. Mad. Puls1
flaug lika eins og fuglinn út úr Skálinni hjá Stýrímanninum, og allt
var á ringulreid. Sierhvad eitt var reyrt nidur med reipum og
Klömpum.

17. Hvass Landsynningur med regni, og nóttina eptir jókst
hvöru-tveggia.

18. Nockud hægra vedur med stórskúrum og Landnyrdíngi. Vorum
vid eptir Bestickinu þ: útreikningnum] móts vid’ Fuglaskier.

19. Sama vedur. Um qvöldid Logn.

20. Litil gjóla á Landsunnann, er vidhieldst fram til kl. 7 E. M. Pá
logn giördist. Um nóttina Kl. 11 sneri vindur sier til vesturs.

21. Vidhielst sami vindur. Sigldum fra 3 a 41/a milu i vakt, og um
nóttina 4 a 6.

22. Útnyrdingur, er smasneri sier til Sudurs, og um nóttina til
Land-sudurs.

Pridia vika.

23. Stórvidri á Landsunnann. Lygndi um qvöldid.

24. Sama vedur og vindur med stórskúrum allt til qvölds. Lygndi
hann þá, enn leit illa út.

25. Kl. 4 fengum hægann ütnyrding. Vorum eptir Skipherrans
Reikn-ing hierum 60 milur fyri vestann Færeyar. Um leid og vid circa
kl. 1 vorum nærþvi loknir vid ad fá til lifs vorn sidvanalega bleytta
harda fisk og Smiör-öl-graut, kom Bátsmadurinn nidrí Káhyttu og
beiddi Skipherrann ad koma upp á deck. Vid fórum þarupp
skömmu eptir, og var pá farid ad venda i mesta flaustri.
Skipherrann var heldur snúdugur i bragdi, og loksins fengum vid ad
vita ad vid værum komnir svo lángt ad Færeyar sæust, og ej
óhætt, ad halda sömu stefnu. Öllum kom þetta mjög óvart, f>ar
vid eptir Stirimanns-útreikningnum áttum ad vera fullar 12
ping-mannaleidir fyrir vestann Færeyar, sem sló þannig litilega feyl, og
sýndi hve sterkir formennirnir vóru i Konstinni.

26. Hvass Landsynningur med stórskúrum. Hrakti ockur þá til baka
fyri straumi og vindi vestur eptir, svo brádlega hvurfu Færejar úr
sýn. Sama vedur vidhieldst einnig um nóttina.

27. Stýfingskaldi á Landsunnann. Sigldum vid aptur litid á leid med
barníngi, komustum pó ej svo lángt ad vid sæum Færejar. Um
nött-ina liet Skipherrann drifa tilbaka med sama vind og vedri.

28. Skúravedur, med Sunnanvindi framanaf, enn um nónbil sneri vindur-

1 »Maddama Puls« hefir liklega verið orðatiltæki skólapilta fyrir graut; puls
merkir á latínu grautur.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0137.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free