- Project Runeberg -  Eimreiðin / III. Ár, 1897 /
126

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

12 6

tekst betur. Þó er meiri þunglyndisbær og sorgarsvipur yfir
persónun-um í Laxdælakviðu en i Laxdælasögu.

Kviðan um Sigurð Fofnisbana, 1877, er störskorin og tignarleg,
eins og efninu hæfir. Hún er i fjórum pörtum. I. U111 Sigmund fööur
Sigurðar. II. Reginn (Sigurður fæddur, vegur Fofni og Regin, ristir
brynjuna af Brynhildi á Hindarfjalli, og er því lýst með dæmafárri
snilld). III. Brynhildur (draumur hennar, Sigurður hjá Niflungum,
Guð-rún, vafurlogareið, víg Sigurðar, tregrof Guðrúnar, bálför Brynbildar).
IV. Guðrún (og Atli, Niflungavig, dauði Guðrúnar). Morris hefur opt
höfuðstafi og stuðla í kviðu þessari, og tek jeg til dæmis um Sigurð
Fofnisbana:

»For they loolt on the might of kis limbs and his ivaving locks they
see.« Er mesta furða, hve vel hann nær kenningum og orðsnilld
Eddu-kvæðanna og Völsungu, enda hefur hann lagt sig til, þvi yrkisefnið er
hið ágætasta, sem nokkurt skáld getur átt, og mun það ætið verða hin
ýtrasta skáldraun (sbr. mannraun) aö yrkja um þaö. Richard Wagner
befur líka ort um Völsunga í hinni miklu tóna-»tetralogi« sinni um
Völsunga og Niflunga og mun slíkt aldrei fyrnast.

I »Poems by the Way« er kvæði um Hallbjörn sterka úr
Land-námu, og annað um Gunnar á Hlíöarenda. Kvæöi í landsýn við Island
lýsir ástarþeli Morrisar við Frón.

A ofanverðri æfi sinni var Morris sósialisti og orti og ritaði margt
í þá stefnu. Honum var flest til lista lagt, því hann var skáld, málari,
prentari — Kelmscott prentsmiðja hans prentaði dýrari og kostulegri
bæk-ur en nokkur önnur prentsmiðja •—, húsasmiður, veggtjaldasmiður o. fl.
Hann vildi ekki låta hagga einum stein i gömlum merkiskirkjum, en
alla presta vildi hann låta hengja. Jeg kom opt á fundi, sem hann hjelt
heima hjá sjer, og einu sinni’ kallaði einn ræðumaður mig danskan —
hann vissi ekki betur en Island væri danskt. Reis þá Morris i bræði
og sagði, að Danmörk væri ekki þess verð að leysa skóþveng Islendings,
hvað þá heldur að kúga hann, en til þess vantaði hana ekki viljann, en
máttinn. 011 Noröurlönd, og England meö, væru andleg skattlönd Islands.
Jeg skal ekki hafa meira eptir honum af skömmunum um Dani, en
ræöu-maöur kvaðst hafa sagt þetta i grannleysi og baö fyrirgefningar.

Morris var likur islenzkum bónda ásýndum, þrekinn maöur og
rek-inn saman, rauöbirkinn á hár og skegg, bláeygur og fasteygur. I
klæöa-buröi var hann mjög tilhaldslaus. Hann var auðugur maöur og Ijet eptir
sig um miljón króna. Hann átti verksmiöju nálægt London, þar sem
ofin voru veggtjöld og smiöaö ýmislegt, sem bætti hýbýlahátt
Englend-inga. Hann var mjög góögjöröasamur maöur og ör á fje viö fátæka.
Peim, sem pekktu hann bezt, þótti mest til hans koma, en sumum útifrá
þótti hann vera nokkuö hrossabrestslegur, enda var hann óhlifinn i
orö-um, viö hvern sem var aö skipta, og fór ekki i launkofa meö neitt,
sem honum mislikaöi. — Kona hans og tvær dætur eru á lifi.

Lundúnum, i marzm. 1897.

Jón Stefänsson.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0146.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free