- Project Runeberg -  Eimreiðin / III. Ár, 1897 /
147

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

47

þeir borga hann með ávísan á verzlunarhús í Kaupmannahöfn, ef
tollheimtumenn taka það gilt, og þvi miður eru flestir neyddir til
að gjöra það. Eins og mörgum mun kunnugt, hafa flestir íslenzkir
kaupmenn umboðsmenn í útlöndum, er hjálpa þeim með kaup á
útlendri vöru og sölu á íslenzkri, og hlaupa þessir umboðsmenn
opt undir bagga með kaupmönnum og lána þeim fje, þegar þeim
liggur á; en auðvitað gjöra þeir það ekki nema þeir fái eitthvað
fyrir snúð sinn. Fyrst og fremst taka þeir alloptast 6 °/0 árlega
» vexti af þeim peningum, og því næst 2 °/0 af upphæðinni í
um-boðslaun

Þegar nú um tolla er að ræða, mun optast fara svo, að
kaup-menn verða að fá peninga að láni hjá umboðsmönnum sínum, til
þess að borga þá með; þvi fyrir það, sem þeir kunna að hafa átt
inni hjá umboðsmönnum sínum um haustið eða veturinn, kaupa
þeir vörur á vorin. Þau lán, sem kaupmenn fá á vorin eða
sum-rin, geta jpeir ekki borgað fyr en á haustin, er þeir liafa selt vörur
sínar, og má áætla, að þeir borgi vexti af af peningum þeim, er
þeir fá að láni til þess að borga toila með, í hjerumbil 1/2 ár, því
flestir fá vörur sínar til Islands seint i apríl, eða snemma í mai,
og í stað þess að borga tolla af þeim strax, gefa þeir út ávísanir
á verzlunarhús í Kaupmannahöfn, sem svo eru borgaðar ut við
framvísun; en frá þeim degi, er þær eru borgaðar, verða
kaupmenn þeir, sem ekki eiga nóg fje inni hjá umboðsmönnum sínum,
til þess að borga þessar ávísanir, að gjalda vexti af þeim, auk þeirra
umboðslauna, er umboðsmaðurinn reiknar sjer. Af þessu
fyrir-konmlagi leiðir, að undanfarin ár hafa bæði kaupmenn, landsjóður
og landið i heild sinni tapað töluverðu fje, sem runnið hefur
sumpart í vasa umboðsmanna kaupmanna eiiendis, en sumpart
hvergi komið niður. Tap það, er kaupmenn verða fyrir, orsakast
af hinum afarháu vöxtum, er þeir verða að gjalda umboðsmönnum
sinum, en tap landsjóðs af vaxtamissi af tollinum, frá þeim tima,
er tollskyldar vörur komu á land á Islandi, eða
útflutningstoll-skyldar vörur eru fluttar út úr landinu, til þess tima, er
Kaup-mannahafnar-ávisanirnar eru borgaðar út, sem opt getur dregizt
alllangan tíma sökum samgönguskorts; og þó í rauninni miklu
lengur, þvi ríkissjóðurinn, sem allar slíkar ávisanir eru borgaðar
inn i, geldur enga vexti af því, er landsjóður á inni hjá honum.
Landsmenn tapa einnig fje við það, að meira verður að borga
fyrir hinar tollskyldu vörur, en þeir þyrftu, ef vextir af tollinum

10*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0167.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free