- Project Runeberg -  Eimreiðin / III. Ár, 1897 /
174

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

174-

aö henni og hylltu hana með bezta hug og tilfmningum. Það
var engu spáð fyrir henni, eins og opt er gjört fyrir
mikilmenn-um. Allir voru svo hárvissir um hennar framaríku framtíð, að
engin spá komst að.

VI.

Konráð sonur síra Höskuldar var langt kominn í
lærðaskól-anum. Hann virtist i fljótu áliti vera mikið mannsefni, og hafði
því mikið orð á sjer þar í sókninni. Faðir hans hafði gott álit á
honum, og dreifðist það út um sveitina smámsaman. Hann hafði
ætíð nóg af frægðarsögum á reiðum höndum handa
kunningjun-um um son sinn.

Þeim Konráði og Unni kom strax vel saman, og fann
eng-inn samkomulagi þeirra neitt til saka. Hann var lika sá eini
pilt-ur þar um slóðir, sem nokkur tiltök voru að jafna við hana.

Þá var það tízka í landinu, að senda heldri bændadætur til
höfuðstaðarins. Var það kallað að setja þær til mennta. En
sum-ir kölluðu það að setja þær á »trúlofunarmarkað landsins«. — Fyrsta
haustið, sem Unnur var á Kálfá, var hún sett til mennta i
höfuð-staðinn. Það var ekki tiltökumál, þó þau Konráð og Unnur
væru skoðuð sem góðkunningjar þar. Sumt kunnugasta íólkið
spáði því, að þau yrðu hjón á sínum tíma. Aðrir drógu það í efa,
og færðu það til, að Konráð væri að engu leyti samboðinn Unni.
Hæfileikar hans væru ekki eins miklir og af væri látið. Hann væri
óreglumaður og staðfestulítill, og myndi aldrei verða mikið úr
honum. Aptur á móti hafði Unnur alla beztu kosti til að bera.
Almenningsrómurinn sagði, að hún væri hin fegursta mær á
ís-lenzka tungu, hún var álitin gáfuð í bezta lagi og allir vissu að
hún var rík, og þar fram eptir götunum. Hamingjan umkringdi
hana hvervetna, bæði í vöku og draumi.

Seinni veturinn, sem hún var í höfuðstaðnum, kynntist hún
jafnöldru sinni af Austurlandi. Hún hjet Asgerður Gísladóttir. Hun
þótti mikill kvennkostur og fjekk brátt mikið orð á sig. Piltarnir
báru þær þannig saman, að þeir kölluðu Unni »sólina«, en
As-gerði »reikistjörnuna«, og hafði engin stulka komizt svo i
ná-munda við Unni.

Unni fannst þegar hún sá Asgerði, sem einhver óhugð eða
kviði gagntæki sig. Hún reyndi að hrinda þessu sem lengst og

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0200.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free