Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
175-
lengst í burtu, en það fygldi henni sem skugginn hennar. Þessí
óhugð fygldi hanni hvar og hvervetna, á bakvið allt og i öllu.
Asgerður hafði þá lyndiseinkunn, að laða alla að sjer, sem hún
kynntist og var samtíða. Unnur varaðist að låta nokkurn vita um
óbeit sina á Ásgerði, og skoðaði hana heimsku eina.
Pau Konráð og Ásgerður urðu fljótt góðkunnug. Hann var
einn af þeim ungu mönnum, er forsjónin virtist hafa ákveðið
þeg-ar í upphafi, að eiga skyldi fáein samferðaspor með öllum
falleg-ustu kvennjafnöldrum sínum. Unni fjell það hálfilla í fyrstu, að
hann og Ásgerður voru svona góðkunnug. En hún sá strax, að það
gat enga þýðingu haft, ef hün kysi svo. Hiin vissi, að hún bar
ægishjálm yfir öllum stúlkum, þó hún hefói aldrei notað sjer það.
Seint um veturinn fjekk Unnur brjef frá sira Höskuldi, sem
tilkynnti henni iát móður hennar. En brjefið var svo lipurt og
hluttekningarlega orðað, að það dró mikið úr þessari sorgarfregn.
Og svo reyndu allir, já, hvert einasta mannsbarn, sem mögulega
gat náð til Unn’ar, að ljetta henni móðurmissinn eins mikið og
unnt var. En allra, allra mest leituðust þau Konráð og Ásgerður
við að draga úr áhrifum þessa atburðar. Unni fannst samt
Kon-ráð vera öllum fremri í þessu efni. Og þó þessi atburður væri
sá þyngsti sem mætt hatði henni á lífsleiðinni, þá bar hún hann
vel, — þessi gæfusama stulka, sem heimurinn hafði hossað hæzt
allra til þessa. Var hamingjusól hennar runninn til viðar eða
hvað?–-
Þessi vetur var fyrri vetur Konráðs á prestaskólanum. Þau urðu
samferða heim, Konráð og Unnur. Það var tekið mæta vel á
móti þeim heima. Og öll sveitin sýndist verða Unni fegin. Hún
var samt venju fremur hljóð og fáskiptin, og furðaði slíkt engan
eptir þau tíðindi sem gjörzt höfðu.
Um þessar mundir var hjúaekla um land allt, en
kaupafólks-öld hin mesta. Sira Höskuldi var fátt til hjúa sem öðrutn; en
kaupafólk enn þá ekki komið að.
Sökum hafiss fyrir norðan og austan, hafði Ásgerður enn þá
ekki komizt heim til sín með hinum velbyggðu og örskreiðu
»landsgufuskipum«, og af því hún ætlaði að vera næsta vetur við
nám í höfuðstaðnum, rjeði hún af að fara ekki heim til sín þetta
sumar, þareð svo áliðið var orðið tímans. Hún ritaði því Unni
og bað hana ásamt Konráði að útvega sjer kaupavinnu í grennd
við þau, helzt á Kálfá. Var það fljótráðið, að Asgerður yrði á
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>