- Project Runeberg -  Eimreiðin / III. Ár, 1897 /
186

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

186

til að vera mjer hjálplegur i öllum greinum. Björn prófastur
Magnús-son1 hreppti óveður mikið og ferðavolk á leiðinni hingaö.

Hólum 2. sept. 1741.

II.

Fyrir Guðs miskunn líður mjer enn þá rjett vel; þó hefur mjer
töluvert deprast sjón af hinum stöðuga reyk í herbergjunum, og hef opt
af þeim ástæðum eigi getað gert neitt. Dag frá degi hef jeg ljósar
fengið að kenna á ilsku veraldarinnar. Frændi minn getur sagt yður
nánar, hvílíkur oröasveimur hefur komiö upp i tilefni af sendiför minni.
Eptir þvi sem sagt er, mun hann sumpart kominn frá nokkrum
íslenzk-um kaupmönnum og sumpart frá Birni prófasti Magnússyni. Að minnsta
kosti hef jeg orðið þess vísari af samtali, er jeg átti við prófastinn, að
ekki mun hent að trúa honum cJf vel, þrátt fyrir öll hans fögru loforð,
og það verð jeg að segja, að enginn hefur gert mjer erfiðara fyrir en
hann með tilliti til kversins2, sem í ráði er að koma á, þótt hann beri
allt af sjer og kenni öðrum um. Ein af þeim kringilegu mótbátum, er
hann kom með móti kverinu, var sú, að alþýða manna ekki fengist til
að taka viö pvi, af þvi það væri prentað á Vaisenhúsinu3. Jeg er nú
á þeirri skoðun, að nafn þýðandans eigi ekki minnstan þátt i því. Svo
er sagt, að hann muni sækja um Grenjaðarstað, sem er eitt af beztu
brauðum i Hólabiskupsdæmi, en ekki hefur hann enn sem komið er
leitað til min um það mál. Eptir þvi sem jeg í fljótu bragði hef getað
gert mjer hugmynd um viðvíkjandi skólanum hjerna, þá er hann þvi
miöur i mestu vanhiröingu og þarf sannarlega betrunar viö. Skólinn
byrjar í nóvember og endar i apríl, og eru þar á milli mörg fri í
skemmri eða lengri tima. Til kennslunnar er því eigi varið lengri tima
en i hæsta lagi 4 mánuðum. Svo litiö er hjer skeytt um
skólareglu-gerðina, að hún er ekki einu sinni til á staðnum. Hver ástæöan sje,
getið þjer vist hugsað yður. Skólameistarinn er ekki neitt sjerlega vel
starfi sinu vaxinn, og þess verður vist eigi langt að bíða að
heyraran-um verði vikið frá, þvi hann er versti óróaseggur. En hverjir ættu að
koma í þeirra stað, er vandasamt að úrskurða; eptir þvi sem jeg lief
sjeö og heyrt, er mjer til efs, að þá menn sje hjer að finna, sem
æsku-lýðnum væri arkur i aö fá til lærimeistara. Auk þess eru
kennslumeð-ölin svo bágborin og sundurleit, að þau ekki gera annað en trufla bæði
kennarann og lærisveinana. Bæði fyrir sakir almenningsheilla og vináttu
okkar, biö jeg yður þess allra oröa, að þjer styðjið umsókn mína til
Kirkjuráðsins um, að lærimeðöl þau, sem á að innleiða i skólana, verði
gerð úr garði svo fljótt, sem auðið er. — Nokkrir prófastar og prestar

1 Björn Magnússon var prófastur í Húnavatns prófastsdæmi.

2 Kver það, sem hjer ræðir um, var Ponti, og haíði Halldór prófastur
Brynj-ólfsson snúið því i íslenzku.

3 Vaisenhúsið var stoínun í Kmh. handa munaðariausum börnum. Ymsar
bækur, einkum guðsorðabækur, er líkindi þóttu til að stofnunin mundi
ábat-ast á, voru prentaðar á hennar kostnað.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0212.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free