- Project Runeberg -  Eimreiðin / III. Ár, 1897 /
190

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

190-

Lærisvemamir liggja mestan tíraa árs í leti og ómennsku, og þegar
bú-ið er að útskrifa pá, halda þeir annaðhvort letilífi sínu áfram, eða gefa
sig að veraldlegum störfum. Loks verða þeir prestar, og þá taka við
búksorgirnar og fátæktin. Brauðin eru rýr, þeir eiga fyrir konu og
börnum að sjá, og verða þvi aö þræla frá morgni til kvölds eins og
■óbrotnir vinnumenn og geta þvi litt borið umhyggju fyrir sínu andlega
uppcldi. Jeg hef sjeð úrvalið af prestunum hjer nyrðra og rnjer til
mik-illar undrunar orðið þess var, hve grunnt þeir rista. Peir geta þvælt
aptur og fram og fram og aptur um smámuni, en pegar um eitthvað
vandasamt og alvarlegt er aö ræöa, verða peir orölausir. Hinn 21. p. m.
skoðaði jeg brjefaskrinu stólsins, en hún er i því ásigkomulagi, að varla
getur verra verið. Par var rótað saman í eina bendu áríöandi skjölum,
svo sem skólareglugjörðinni, gjafabrjefum og yfirreiðarbókum biskupanna,
að jeg ekki minnist á konunglegar tilskipanir, sem ekki voru nema
sárfá-ar. Jeg hef því skrifað erfingjum biskupsins sáltiga og kraíizt af þeim
allra opinberra skjala, er kynnu að vera í þeirra vörzlum, og auk þess
beöiö Lafrentz amtmann að vera mjer hjálplegan i því efni. í gær fjekk
jeg mjög kurteislegt brjef frá Jóni biskupi Árnasyni í Skálholti, og býðst
hann til að låta mjer í tje alla ástsemd og vináttu. Hann hefur,
sóma-menniö að tarna, eptir beiöni minni sendt mann 20 mílur til að sækja
kverin, sem jeg hef meðferðis. Raunar kemur hann í brjefi sinu fram
meö fjölda af athugasemdum við nýja kverið, en þaö er auðvelt að
eyða þeim öllum. — Fyrir flutning á dóti minu heim til staðarins varð
jeg að gjalda rúma 40 dali i krónumynt.

Hólum 28. sept. 1741.

IV.

Eptir þvi sem mig minnir, gat jeg i brjefum mínum i fyrra
eitt-hvaö um kirkjusiði. Með pvi jeg hygg, að yður muni ekki fjarri skapi
að heyra nokkuð meira um þaö efni, pá vil jeg nú halda því áfram, og
:ætla J)á aö geta pess, er konur eru leiddar í kirkju. Áður
guðsþjónust-an hefst, nema þær staöar viö innri dyr kirkjunnar meö barniö á
hand-leggnum. Eins og siöur er til á Holtsetalandi heldur presturinn stutta
tölu yfir peim, og tekur því næst i hönd þeim og leiöir þær inn eptir
kirkjugólfi og i stól þann er næstur er kórnum. A leiöinni mælir hann
fram þessi orö: »Konunni ber aö ganga i helgidóm Guös og færa
honum bakkarförn.« fegar konan er komin inn i stólinn, krýpur hún á
knje með barnið á handleggnum, en fær það von bráöara i hendur
kon-um þeim, er næstar henni sitja. Presturinn staönæmist fyrir framan
stólinn og syngur sálminn: »Herra Guö Faöir hlifð þín sje,« og aö þvi
búnu stendur konan upp aptur. Um altarisgöngur er eigi annaö aö segja
en paö, aö þegar borögestirnir eru fleiri en svo, aö peir geti allir i einu
kropiö niöur viö gráturnar, þá krjúpa hinir niöur á gólfinu umhverfis

Pegar biskupinn fer til altaris, er höfö hin mesta viöhöfn. Eptir
aö hann er búinn aö skripta, er sihringt einni klukku þar til
guösþjón-.ustan hefst. Pegar búið er aö lesa inngangsbænina, er sihringt einni

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0216.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free