- Project Runeberg -  Eimreiðin / III. Ár, 1897 /
212

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

212-

er frændur vakna
og landslýður
likist feðrum.

Fram, fram, frændur!
til friðar dáða,
rjettið hvað rangt er,
reisið hið fallna,
byggið og bætið
böl með vizku,
gjörið verk sem vara
unz veröld eyðist!

Jólanóttin.

(Eptir Wergeland).
Hvern skyldi gruna

það ógnarveður — utan þeir sem muna —
þann byl, er var sem allur ára fans
og fyrirdæmdir formælt hefðu og rótað
fallinni jörðu, hamazt, bölvað, blótað . . .
þann byl hvers voða
öld eptir öld í minni lætur loða . . .
því sjerhver hugði: hann mun sendur mjer
og minnar vonzku vegna
vill Drottins heipt oss hegna
og á oss senda þenna heljarher . . .
þann byl, sem kennt gat klerki
að trúa á nafn þitt Þrumu-Þór inn sterki,
því enn þín reiðin rymur
og hátt í hlustum ymur
með ógnum ramra regingoða . . .
þann byl er hristi

svo hug og sál, að megn og rænu misti, —
og hverjum manni heyrðist nefnt sitt nafn
af ógnarár, sem eyrun skar og risti

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0238.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free