Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
213-
en náhjóð kvað við hverja gátt sem hrafn.
En hrafninn sjálfur skriðinn var í skjól
með skolla og vargi hvar sem hitti ból.
1 hverju húsi og koti
var ljós hvert slökkt og lokað hverju skoti
og sjerhver hundur hafður inn.
— þá fékkstu bænir, mildi Drottinn minn!
I slíku veðri — rjett er tók að rökkva
hinn helga aptan aðfangadag jóla,
var Gyðingur á ferð á öldungs aldri
um Heiðarskóg og nærri miðri mörk,
en Noregs megin, stefnir beint til byggða
frá sænskri lóð og sækir veginn fast;
því meyjunum hann færði fyrir jólin
í fullri skreppu klúta, bönd og tvinna,
til dýrstu jóladaganna og nýárs;
þær þráðu hann, en hvergi hræddar voru,
þvi aldrei hafði gamli Jakob gleymt
að gleðja þær um jólin, hans var von
eins vist og kvöldsins þess er þá var byrjað.
I sliku veðri . . .
þey þey! það er rokið
sem þýtur svo í trjánum. — En það óp! —
þar hljóðar eitthvað aptur! Gamli Jakob
hikar sjer þvi og hlustar öðru sinni.
Nú þegir það en veðrið ærist aptur,
sem yfir þeim sem drukknar drynur foss.
Hann heldur áfram. Aptur kemur hljóðið
og undarlega sker sig gegnum storminn.
»Par vælir einhver óvættur sem barn, —
sem barn? hver sleppir börnum út í þetta,
það gjörir enginn úlfur sinu jóði.«
Hann kafar enn þá öskufjúk og fannir . . .
Nú gellur hljóð svo hverfur allur vafi,
þvi hvirfilbylur, sá er þarna þyrlar
snjóstróknum milli stofnanna ber orð,
orð til hans, einstakt orð, og það var nóg.
Hann snýr sjer við og veður nú á hljóðið.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>