- Project Runeberg -  Eimreiðin / III. Ár, 1897 /
221

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

221-

ekki annað en að lítilfjörlegur veikindablær bljesi um það, svo að
það lægi fallið í moldunni til þess að fúna þar og rotna.

»En hvernig ertu, mamma mín? Hvernig líður þjer?«

»Jeg er blind — alveg blind á báðum augum!«

»O, guð hjálpi þjer, mamma mín!« sagði jeg, um leið og
jeg vafði hana upp að mjer, og lagði hana undir vanga minn;
mjer þröngdi um andrúm og kom grátstafur í kverkar.

»Já, jeg var búin að vera lengi slæm og viðkvæm í
augun-um, eins og þú manst. Svo först þú, og þú komst ekki aptur á
þeim tíma, sem von var á. Svo liðu langar stundir; jeg gåt ekki
sofið á nóttunni, og alltaf versnaði mjer i augunum, og mjer
fannst á hverjum morgni, er jeg kom út og horfði fram eptir
dalnum, hvort þú sæist ekki — mjer fannst mjer hnigna meir og
meir með sjónina, sá alltaf skemmra og skemmra fram í dalinn.
Svo var það í lok túnasláttar, er jeg sat sunnan undir veggnum,
einmitt þar sem jeg sat núna, að jeg sá djarfa fyrir manni, sem
reið sunnan melinn. Heiðríkt var og kyrt, og sólin í hádegisstað,
rjett yfir hlíðinni, og stafaði niður á vatnið, rifið og tjörnina.
Svo þegar maðurinn kom á rifið þá átti jeg erfitt með að greina
hann í sólargeislanum; jeg njeri á mjer augun og rýndi og rýndi,
en sá hann alltaf ver og ver, og mjer fannst sem smámsaman
skyggði að. Mjer datt í hug, að ský eða bliku mundi vera að
draga fyrir, og leit upp; það var ekki. Jeg sá sólina; en sú birta!
en sú stærð! Var sem hún allt í einu breiddist út yfir helming
himinsins, og.jeg fjekk óþolandi sviðasting í bæði augun, svo jeg
greip báðum höndum fyrir þau. Stinginn lagði um allt höfuðið,
og er hann rjenaði, leit jeg upp; en þá sá jeg hvorki sólina nje
loptið; hlíðin og vatnið var horfið, maðurinn, rifið og tjörnin; og
bæinn og sjálfa mig sá jeg ekki heldur. Allt var niðamyrkur.
Jeg var orðin steinblind!«

Jeg virti enn þá fyrir mjer þetta hrukkótta, föla og
kinnfiska-sogna andlit, þessi sjötnuðu augu, þenna bogna líkama og óstyrka
limaburð, og jeg átti erfitt með að halda grátinum niðri.

»Þú hefir sjálfsagt lika verið ósköp vesöl í sumar, mamma;
þú ert svo óstyrk og vesaldarleg.«

»Já jeg hefi verið það; jeg lá nærri því mánuð i brjóstveiki
og þyngslum. Svo Ijetti mjer aptur, og jeg hefi vafrað ofan og
út núna nokkra siðustu dagana. Veðrið hefir verið svo gott.
Blessuð sólin hefir vermt mig og hendurnar á mjer, svo þær hafa

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0247.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free