Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
224-
Smádýr þessi höfðu reyndar einkar undarlegt athæfi í frammi.
Þau voru á sífeldri ferð og flugi um búrið, vitlaust og botnlaust,
rjeðust með áfergju á rimarnar, er voru úr trje, likt og flugur, er
í grannleysi rekast á gluggarúður. Læknirinn flutti þau í annað
búr með járnrimum, og hjeldu þau þá kyrru fyrir. Tilraunin
styrkti hann í trú sinni.
Engu að síður var Schwanthaler lækni það ljóst, að nauðsyn
bar til að gjöra tilraun, er tæki af öll tvímæli. Hafði hann ekki
helgað vísindunum gjörvallt líf sitt? Atti hann að hika eitt
augna-blik við að hætta sjóninni, ef á þurfti að halda? Var það ekki
ómaksins vert, að sjá inn í kjarna hlutanna, inn í innviði efnisins
og beinagrind líkamanna, og ef til vill alla leið inn í
vinnustof-una, þar sem hugsanir og hugmyndir fæðast, — að komast á
snoð-ir um sálnanna helgustu Ieyndardóma? Og þau handatiltök, er
hann gæti gjört þann dag, er auga hans megnaði að sjá gegnum
hið táldræga yfirborð og stýra hönd hans rakleitt að bústað hins
hulda sjúkdóms! Það mundi veita honum uppreist hjá
starfs-bræðrum hans á spitalanum, er fyrir skemmstu höfðu haft mjög
skiptar skoðanir um handfimi hans, eptir að honum haiði mistekizt
handlækning nokkur hraparlega.
Schwanthaler læknir var ekki lengur á tveim áttum. Hann
tók dálitla vökvabyssu, fyllti hana af vökvanum góða, kom
plat-ínunálinni í lag, og gekk út að glugganum til að gæta að, hvort
vökvinn væri enn þá gagnsær.
I sömu svipan tóku sunnudagsklukkurnar að hljóma frá
kirkjuturnum borgarinnar. Það var bjartur og fagur morgun —
alstaðar lif og litskrúð; trje og runnar stóðu í blóma með
smá-gjörvum, ljósgrænum blöðum, er böðuðu sig i rauðleitu skini
morgunsólarinnar. Hin fyrstu vorblóm önduðu frá sjer þægum
ilm, og fuglarnir sungu í nýútsprungnum krónum hinna gömlu
linditrjáa. Fyrir handan garðmúrinn gekk ung stulka til
brunns-ins með vatnskrus undir hendinni; hún var ljettstíg og fríð
sýn-um. Schwanthaler læknir strauk hendinni um ennið og hugsaði
sig um stundarkorn. Ef rjett var að gáð, þurfti hann að eins að
fórna helmingnum. Visindin kröfðust að eins að hann ljeti
ann-að augað. Hann mátti halda hinu og þannig hafa fulla sjón. Til
tilraunarinnar valdi hann vinstra augað. Hann ýtti með gætni
platínunál vökvabyssunnar inn i augasteinlnn, eins og hann hafði
gjört við marsvínin, spýtti vökvanum inn og setti glerauga fyrir
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>