Full resolution (JPEG)
- On this page / på denna sida
- Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
225-
vinstra augað; hafði hann áður þakið glerauga þetta með
platínu-himnu svo að Röntgens-geislar ekki næðu að komast gegnum það ;
að því búnu lagðist hann á legubekkinn.
* *
*
Daginn eptir vaknaði hann af svefni við að drepið var á dyr.
Hann kannaðist skjótt við hver það var. Það var hún Geirþrúður,
tryggðatröllið, sem færði honum morgunkaffið að vanda. Hjer
var ágætt tækifæri til að reyna verkanir vökvans. Hann þreif í
skyndi gleraugað frá vinstra auganu og lokaði hægra auganu.
Hvilik undur þó! I stað hinnar gömlu vinnukonu, er
lærisvein-ar hans löngum hentu gaman að sakir þess, hve þrýstin hún var
og rauð í framan, sá hann nú klunnalega beinagrind vaga í
hum-áttina til sín; við beinagrindina hjengu innýfli, nálega glær i gegn,
og utan um allt saman var eins konar þykk, grænleit slæða, er
gekk í bylgjum og var ekki alsendis ósvipuð hinum slímkendu,
klukkumynduðu marglyttum, nema enn gagnsæjari og þokulegri
Aptur á móti sáust beinin glöggt gegnum slæðu þessa.
Læknir-inn gat meira að segja sjeð smá óreglu og galla á lögun þeirra,
og hjartað, sem hann gat að eins óljóst greint milli
brjóstrifj-anna, — eins og kólf í klukku — virtist honum þrútið af
háskaleg-um ofvexti. Þar var enginn efi á; tilraunin hafði heppnazt
frem-ur öllum vonum.
Hann klæddist i snatri. Það var einmitt dagurinn, er
hand-lækningar skyldu fram fara á spítalanum. Nú skyldu þá
starfs-bræður hans loksins fá að sjá! Hann stikaði hnakkakertur
gegnum gangana með gleraugað fyrir vinstra auganu, en
hjúkrunar-mennirnir hnipptu hver í annan og hviskruðu: »Ekki nema það
þó, Sehwanthaler læknir með glerauga, og það ekki af lakara taginu.«
Hann gekk inn i handlækningastofuna þarsem starfsbræður hans voru
að skeggræða um það, sem nú var fyrir hendi: hvernig fara skyldi
með sjómann, erí viðureign við náungan hafði fengið fjórar
skamm-byssukúlur i kviðinn. Þrjár höfðu þegar verið dregnar út en fjórðu
kúluna var ekki unnt að finna. Þegar Schwanthaler kom var hann
spurður um hans álit — svona fyrir kurteisis sakir, þvi að menn
vissu, að hann mundi varla hætta sjer út i að leggja úrskurð á
vandasöm efni, er honum haföi tekizt svo hraparlega seinast. En
til mikillar undrunar allra þeirra, er viðstaddir voru, gekk hann
rakleitt að sjúklingnum, tók gleraugað frá, lokaði hægra auganu,
15
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023
(aronsson)
(download)
<< Previous
Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0251.html