- Project Runeberg -  Eimreiðin / III. Ár, 1897 /
226

(1895-1975)
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

226-

þreif sárakannann, stakk honum tafarlaust inn í likama
sjúklings-ins og dró kúluna út. »Sjáið þið til.’« sagði hann rólega er
starfsbræður hans kölluðu upp yfir sig af undrun.

Nú var komið með fleiri sjúklinga, og í hvert skipti sagði
Schwanthaler læknir eptir augnabliks athugun skýrt og skorinort,
hvar sjúkdómurinn var. Hann skar burt krabbamein, skóf bein
og dró út nálar. Reyndar dóu því nær allir sjúklingarnir, en þeir
höfðu notið aðdáanlegrar læknislistar. »En það auga!« sögðu
starfs-bræður hans með undrun og afbrýði. A einum einasta degi hafði
Cornelius Schwanthaler skarað fram úr öllum snillingum aldar-

innar i handlæknislist.

* *

*



Lúinn eptir árdegisverkin lá Schwanthaler læknir í
legubekkn-um og naut sigurfarar sinnar. Þegar hann kom heim, tjekk hann
brjef frá unnustu sinni, ofur viðkvæmt, og setti hún ákaft ofan í
við hann fyrir þögli hans, og bað hann i öllüm bænum að finna
sig daginn eptir niður á fljótsbakkann. En hann las brjefið með
kæruleysi, það lá við að honurn leiddist það. Allt um það
elsk-aði hann Margrjeti sína með gulbjarta hárið, dökkbláu, yndislegu
augun og spengilega limalagið, er rninnti á grannvaxna lilju. En
á þessari stundu var hann gagntekinn af þótta yfir frægð þeirri,
er vísindin höfðu látið honum falla í skaut. Astin fölnaði fyrir
morgunroða frægðar hans, eins og siðasta stjarna næturinnar fyrir
geisladýrð upprennandi sólar. Hann fann hjá sjer þörf til að baða
sig í fyrstu geislum þessarar nýju frægðar, og er hann minntist
þess, að einmitt þetta kvöld var dansleikur hjá borgarstjóranum,
rjeði hann þegar af að fara þangað. Það gåt ekki hjá því farið
að orðrómurinn um snild hans í handlæknishstinni hefði fiogið
■eins og eldur í sinu um þvera og endilanga borgina. Reyndar
hafði hann viðbjóð á mannfundum, einkum dansleik; en hann var
nokkurs konar heimspekingur. Hann sá i hendi sjer, að auk
ánægjunnar af að heyra sjálfum sjer hrósað, mundi hann fá ágætt
tækifæri til að låta Röntgens-auga sitt dvelja við daður og
hjegóma-skap kvennþjóðarinnar. Honum var fullljóst, hvílikt gagn
læknis-listin mundi hafa af uppgötvun hans; en hann langaði líka til að
sjá deginum ljósara það gagn, er sálarfræðin hlyti af henni.

I tæka tíð fór hann í kjólinn, dró upp hvíta hanzka og

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sat Dec 9 22:04:18 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/eimreidin/1897/0252.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free